Fotbolti.net
09.05.22 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Pogba hefur tjáð Man City að hann hafi annað í huga

Pogba hefur tjáð Man City að hann hafi annað í huga
Canon

Mynd: EPA

The Athletic segir að Paul Pogba hafi tjáð Manchester City að hann muni fara í annað félag þegar samningur hans rennur út í sumar.

Greint var frá því í lok síðustu viku að grannar Manchester United hefðu áhuga á því að fá Pogba þegar hann verður samningslaus í júlí.
En útlit er fyrir að Pogba hafi ekki í huga að fara til City þar sem önnur tilboð séu á borðinu sem hann hafi meiri áhuga á. Hann ku hafa sagt City þetta þó ekki sé búið að taka lokaákvörðun.

Hinn 29 ára Pogba er á förum frá Old Trafford en hann hefur ekki spilað eins vel og vonast var eftir þegar hann var keyptur á 89 milljónir punda 2016.

Veðbankar telja líklegast að Pogba fari til PSG eða Juventus. Hann hefur einnig verið orðaður við Real Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.