Fotbolti.net
06.10.26 - 16:35
Kári Snorrason

Tvö ár síðan að sá hárprúði fór í klippingu

Ekki farið í klippingu í 730 daga.

Ekki farið í klippingu í 730 daga.

Canon

Mynd: Skjáskot

Slétt tvö ár eru síðan að Frank Ilett, hárprúði stuðningsmaður Manchester United, fór síðast í klippingu.

Hann tók þá ákvörðun að klippa ekki hár sitt fyrr en United næði fimm sigurleikjum í röð í október 2024 og hefur liðið ekki náð því síðan þá.

Illet heldur meðal annars úti YouTube-rásinni The United Strand, sem er með um 161 þúsund áskrifendur, auk þess sem hann er með stóran fylgjendahóp á bæði TikTok og Instagram.
Rooney kominn með nóg af þeim hárprúða
TENGT EFNI

Rooney kominn með nóg af þeim hárprúða

Skiptar skoðanir eru á Ilett en Wayne Rooney hefur m.a. lítið álit á stuðningsmanninum og hefur hann gagnrýnt hann opinberlega.

Sá hárprúði hitti Ruben Amorim um daginn sem baðst afsökunar á að hafa ekki náð að tengja saman fimm sigurleiki í þeim 63 leikjum sem hann stýrði United.
Ilett og Amorim hressir.

Ilett og Amorim hressir.

Canon

Mynd: Instagram: @theunitedstrand

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.