Álitsgjafar svara - Hvað hefur komið mest á óvart í Bestu?

Keflvíkingum var spáð botnsætinu fyrir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Unnar Illugason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Páll Ástvaldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Frank Ásgeirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur Gunnarsson hress.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflvíkingum var spáð botnsætinu fyrir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrjár umferðir eru eftir og hefur Víkingur þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Spennan er öllu meiri í botnbaráttunni þar sem hart er barist um áframhaldandi sæti í deildinni á næsta ári.
Til þess að hita upp fyrir endurkomu deildarinnar var ákveðið að líta yfir farinn veg og fékk Fótbolti.net fimm álitsgjafa til þess að gera upp tímabilið til þessa.
Fyrsta spurningin sem lögð var fyrir álitsgjafahópinn var: Hvað hefur komið mest á óvart?
Keflavík hefur komið langmest á óvart í sumar.
Það voru allir sem spáðu þeim beint niður en þeir enda í efri hluta og hafa verið virkilega skemmtilegir í sumar. Þeir tækluðu hnefasamlokumálið líka vel.
Jóhann Páll Ástvaldsson
Doði Blika. Hefur verið algjör lognmolla en rifið sig upp í leikina sem skipta máli. Þeirra bestu frammistöður hafa verið gegn toppliðunum en inn á milli hefur þetta virkað orkulítið og áhugalaust.
Ég man að ég taldi Blika líta ansi vel út þegar ég horfði á þá spila gegn Strasbourg í desember 25. Ólafur Ingi er líka einn sá allra nettasti á hliðarlínunni með kragann upp. Fannst eins og það væri einhver gír í þeim.
Bikar í ár og fullt, fullt af ungum gröðum Blikum klárir í slaginn. En vonbrigðaár og komu mér á óvart, það er klárt.
Ásgeir Frank Ásgeirsson
Það sem hefur komið mér mest á óvart er Keflavíkurliðið.
Þeir rétt náðu inn í play offs í Lengjudeildinni í fyrra og í grunninn mikið af sömu leikmönnum og voru með þeim i Lengjudeildinni í fyrra og í bestu deildinni í ár.
Mér finnst þeir ekki hafa átt marga lélega leiki í sumar og hafa gefið öllum leik og betur en það. Stutt á milli í þessu.
Hilmar Jökull Stefánsson
Keflavík hefur komið mest á óvart.
Maður bjóst einhvern veginn við því fyrir tímabil að þeir yrðu fallbyssufóður eins og þeir hafa oft verið þegar þeir koma upp en þeir hafa náð að stilla saman strengina all rækilega fyrir þetta mót og eru núna grenjandi úr hlátri og þægilegir í efri hlutanum.
Valur Gunnarsson
Keflavík hefur komið mest á óvart í deildinni. Sama hvernig við horfum á það. Hvernig þeir héldu dampi út mótið er aðdáunarvert.
Ef ég ætti að nefna tvo leikmenn sem hafa komið mér mest á óvart í Keflavíkurliðinu myndi ég líklega nefna Þorlák Breka Baxter og Eið Orra. Átti ekki von á þeim svona sterkum í sumar.
Á hinum endanum getum við talað um lið eins og KA. Ég átti ekki endilega von á að þeir væru í einhverri baráttu um Evrópusæti en að þeir séu í bullandi fallbaráttu þegar það eru þrjár umferðir eftir af mótinu kemur mér á óvart.

Viktor Unnar Illugason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Páll Ástvaldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Frank Ásgeirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur Gunnarsson hress.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
