Fotbolti.net
06.10.26 - 17:39
Brynjar Ingi Erluson

Bayern í viðræðum við JJ Gabriel - Gerir háar launakröfur

Bayern í viðræðum við JJ Gabriel - Gerir háar launakröfur
Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

Þýskalandsmeistarar Bayern München hafa rætt við föruneyti enska leikmannsins JJ Gabriel en þetta herma heimildir Sky í Þýskalandi.
JJ Gabriel er 15 ára sóknarmaður hjá Manchester United. Hann kom félaginu á óvart í síðasta mánuði þegar hann sagðist vilja fara og hafa Barcelona og Real Madrid helst verið nefnd sem líklegasti áfangastaður kappans.

Bayern vill þó líka fá hann og hefur rætt við föruneyti hans samkvæmt Sky. Þýska félagið er tilbúið að gefa honum tækifæri með aðalliðinu en launakröfurnar eru háar. Gabriel er sagður vilja nokkrar milljónir evra á ári og háan undirskriftarbónus að auki.

Bayern hefur ekki gefist upp og viðræðurnar halda áfram. Það gæti fljótlega skýrst hvað verður um Gabriel sem verður 16 ára á morgun og hefur enn ekki skrifað undir samning hjá United.

Hann bíður líka eftir að fá kýpverskt vegabréf svo hann geti farið fyrr frá United til annars félags í Evrópu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.