Fotbolti.net
06.10.26 - 17:30
Kári Snorrason

Vendingar hjá veðbönkum - Yamal nú líklegastur til að hreppa Gullboltann

Vann HM með Spáni í sumar.

Vann HM með Spáni í sumar.

Canon

Mynd: EPA

Lamine Yamal er nú talinn líklegasti leikmaðurinn til að fá Ballon'dor Gullboltann. Harry Kane hafði verið talinn líklegastur en Yamal hefur nú tekið forystuna.

Hjá Epicbet er mjótt á mununum á milli Yamal og Kane. Yamal er þar í 1,90 í stuðul en Kane í 2,10. Næstir á eftir koma Kylian Mbappé og Lionel Messi, sem báðir eru í 20,00.

Bet365 metur Yamal enn sigurstranglegri en þar er hann í 1,73 í stuðul, á meðan Kane er líkt og hjá Epicbet í 2,10.
Kane á skilið að fá Gullboltann
TENGT EFNI

Kane á skilið að fá Gullboltann

Stuðlar veðbanka fara á skjön við niðurstöðu könnunar sem var nýverið á forsíðu Fótbolta.net. Þar voru lesendur spurðir hver ætti skilið að hreppa Gullboltann og var Harry Kane afgerandi efstur með um 48 prósent atkvæða. Lamine Yamal fékk hins vegar aðeins 11 prósent atkvæða.

Verðlaunaafhendingin verður mánudaginn 26. október 2026 og er hún að þessu sinni haldin í Lundúnum.
Kane hefur átt frábært ár.

Kane hefur átt frábært ár.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.