Leiktíminn í kvöld hefur áhrif á miðasölu
Elíza Gígja skrifar frá Tallinn

Úr fyrri leik liðanna á Laugardalsvelli

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Úr fyrri leik liðanna á Laugardalsvelli

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland mætir Eistlandi í C-deild Þjóðardeildarinnar í fjórða, og síðasta, leiknum í þessum glugga. Leikurinn fer fram á A. Le Coq Arena í Tallinn en flautað er til leiks klukkan 18:45 á íslenskum tíma.

Arnar gerir ráð fyrir kokhraustum Eistum
A. Le Coq Arena tekur 14.336 manns í sæti en það lítur allt út fyrir að það verði langt frá því að vera uppselt í kvöld. Það er ekki búist við nema 5500 manns á leikinn en samkvæmt heimamönnum er það vegna þess að leikurinn er spilaður svona seint á virkum degi. Leikurinn verður flautaður á klukkan 21:45 að staðartíma og klárast því ekki fyrr en í kring um miðnætti.
Þetta er annar leikur liðanna í glugganum en þau mættust á Laugardalsvelli seint í síðasta mánuði. Leikurinn endaði með svekkjandi 1-1 jafntefli en íslenska liðið hefur svarað þeim úrslitum vel með tveimur 3-0 sigrum gegn Lúxemborg og Búlgaríu. Sigur í kvöld fer langt með að tryggja sigur í riðlinum sem verður kláraður í næsta landsliðsglugga í nóvember.


