06.10.26 - 14:10
Kári Snorrason
Dowman dregur sig úr U19-liði Englands vegna meiðsla

Hefur spilað tvo leiki með Arsenal á tímabilinu.

Mynd: EPA

Ungstirnið Max Dowman hefur dregið sig úr U19 landsliði Englands eftir að hafa orðið fyrir meiðslum.
Samkvæmt enskum miðlum er ekki talið að meiðslin séu alvarleg, en staðan verður metin fyrir næsta leik Arsenal gegn Leeds um helgina.
Dowman lagði upp mark gegn Bandaríkjunum en fékk síðar beint rautt spjald fyrir tæklingu í síðari hálfleik.
Þar sem um vináttuleik var að ræða tók leikbannið ekki gildi í næsta leik, gegn Belgíu. En Dowman kom þó ekki við sögu vegna meiðslanna.
Landsleikjaglugginn hefur verið viðburðaríkur hjá táningnum, en hann kemur í kjölfar ummæla Mikel Arteta, stjóra Arsenal, um að möguleg sviðsmynd sé að Dowman fari frá liðinu á láni í janúarglugganum.

TENGT EFNI