Tómas Bent Magnússon átti viðburðarríkt tímabil að baki með Hearts en liðið hafnaði í 2. sæti skosku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa tapað gegn Celtic í lokaumferðinni.
Miðjumaðurinn gekk til liðs við skoska félagið fyrir tæpu ári síðan frá Val og var hann fljótt kominn í stórt hlutverk hjá liðinu.
Tómas kom í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og fór yfir tímabilið í Skotlandi.
Miðjumaðurinn gekk til liðs við skoska félagið fyrir tæpu ári síðan frá Val og var hann fljótt kominn í stórt hlutverk hjá liðinu.
Tómas kom í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og fór yfir tímabilið í Skotlandi.
Ákveðin pyntingaraðferð
„Þetta var viðburðarríkt fyrsta tímabil, ég lærði mikið. Mjög lærdómsríkt og ég er kominn þokkalega vel inn í þetta,“ sagði Tómas aðspurður um hvernig fyrsta tímabilið sem atvinnumaður hafi verið.
Tómas varð fyrir því óláni að meiðast undir lok tímabils og var því ekki til taks á lokasprettinum. Hann segir það erfitt að hafa ekki getað hjálpað liðinu.
„Þetta er ákveðin pyntingaraðferð, mjög erfitt að þurfa horfa á þetta þó að það hafi gengið vel að síðasta leik. Sá leikur var ákveðin pynting. Alltaf erfitt að þurfa að horfa á liðið sitt og geta ekki hjálpað til, hvað þá þegar þetta er svona gaman,“ segir Tómas og var hann spurður út í meiðslin.
„Ég brýt á mér kinnina og var byrjaður að æfa aftur þegar ég tognaði framan í læri. Eftir að ég fór í myndatöku kom í ljós að tímabilið væri búið,“ segir Tómas.
Hársbreidd frá því að binda enda á einokunina
Eins og áður sagði laut Hearts í lægra haldi gegn Celtic er liðin mættust í úrslitaleik í lokaumferðinni. Jafntefli hefði tryggt Hearts titilinn og myndi binda enda á fjögurra áratuga einokun Celtic og Rangers.
„Andrúmsloftið var gott þangað til að við þurftum að ferðast heim í fýlu. Menn voru vel stefndir, gistum í Glasgow deginum fyrir leik. Menn voru gíraðir í leiknum og vorum þokkalega góðir, þangað til að það voru átta mínútur eftir,“ en Celtic komst yfir á 87. mínútu og gulltryggðu sigurinn í uppbótartíma.
„Risinn í Skotlandi og maður finnur fyrir því“
Mikið hefur verið rætt og ritað um umdeilda dóma sem féllu með Celtic á lokasprettinum. Tómas segir þá sitja aðeins í sér.
„Þetta er risinn í Skotlandi og maður finnur fyrir því. En það var bara frábært að upplifa þetta á fyrsta tímabilinu. Þetta var jú mjög svekkjandi hvernig þetta fór. Það er hægt að rýna í dóma og allt það, en svo var einhver leikur sem við hefðum getað unnið, þá hefði þetta verið okkar. Einhverjir dómar sem sitja líka í manni, en fyrst og fremst vorum þetta við.“
Voru leikmenn mikið að velta sér upp úr þessu?
„Það eru allir á samfélagsmiðlum og það er ekki hægt að skrolla í gegnum þá án þess að fá upp eitthvað af boltanum, hvað þá þessum dómum sem féllu með þeim en ekki okkur. Það er bara pirrandi en svona eru íþróttir, það getur ekki allt gengið upp.“
Erkifjendurnir orðnir stuðningsmenn
Tómas segir flesta í Skotlandi hafa stutt Hearts í baráttunni við Celtic, jafnvel stuðningsmenn Hibernian, sem eru erkifjendur Hearts.
„Ég held að einhverjir Hibs stuðningsmenn vonuðust eftir að við mundum vinna þetta svo að eitthvað annað lið en risarnir tveir væru að berjast um þetta. En við náðum að 'split The Old Firm' eins og þeir segja. Fólkið í Skotlandi var farið að halda með okkur og utan Skotlands líka.“
Hlutverkið kom á óvart
Tómas spilaði alls 27 leiki með Hearts á tímabilinu og var hann fljótt orðinn byrjunarliðsmaður. Kom það á óvart að þú værir strax kominn í svona stórt hlutverk hjá liðinu?
„Það má alveg segja það. Ég fór út með það markmið að reyna aðlagast eins fljótt og hægt er - fá eins mikið af mínútum og ég gat. Ég spilaði mikið áður en ég meiddist. Það kom mér á óvart en sýndi mér að ég átti erindi í þetta.“
Skoski boltinn hentar þér vel?
„Það má segja það. Mikil hlaup og mikil barátta. Ég hélt að ég væri í ágætu standi þegar ég fór út en ég átti svolítið í land með hlaupagetu,“ sagði Tómas að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan
























