Síðustu leikjum kvöldsins í undankeppni Evrópuþjóða fyrir heimsmeistaramótið á næsta ári er lokið.
Frakkland tryggði sér toppsæti síns riðils með naumum sigri á Írlandi. Melvine Malard skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik.
Heimakonur voru sterkari aðilinn fyrir leikhlé en Írar tóku völdin í síðari hálfleik, sérstaklega eftir að Thiniba Samoura var rekin af velli með tvö gul spjöld.
Írar sköpuðu færi til að jafna en boltinn rataði ekki í netið svo lokatölur urðu 1-0. Frakkar enda í toppsæti riðilsins og endar Holland í öðru sæti eftir sigur gegn botnliði Póllands. Írar enda í þriðja sæti en hefðu getað stolið toppsætinu með óvæntum sigri í Frakklandi.
Danir innsigluðu þá sitt toppsæti á meðan Ítalir náðu öðru sætinu með jafntefli í Svíþjóð sem endar í þriðja sæti. Ítalía komst í tveggja marka forystu í Svíþjóð en heimakonur jöfnuðu í síðari hálfleik, lokatölur 2-2.
Spánn innsiglaði þá sigur í íslenska riðlinum með auðveldum sigri á Laugardalsvelli og endar England í öðru sæti eftir 3-0 sigur gegn botnliði Úkraínu.
Frakkland 1 - 0 Írland
Holland 3 - 1 Pólland
Serbía 1 - 4 Danmörk
Svíþjóð 2 - 2 Ítalía
Ísland 1 - 6 Spánn
England 3 - 0 Úkraína
Slóvenía 0 - 2 Þýskaland
Noregur 2 - 1 Austurríki




