Fotbolti.net
29.06.26 - 23:04
Brynjar Ingi Erluson

Umdeildasta ákvörðun mótsins til þessa? - „Ja hérna!“

Jonathan Tah stangaði boltanum í netið en markið var dæmt af vegna brots í aðdragandanum

Jonathan Tah stangaði boltanum í netið en markið var dæmt af vegna brots í aðdragandanum

Canon

Mynd: EPA

Afar umdeilt atvik kom upp í framlengingunni milli Paragvæ og Þýskalands í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Boston í kvöld, en það var þegar mark var dæmt af varnarmanninum Jonathan Tah eftir hornspyrnu.
Þjóðverjar höfðu verið hættulegir í föstum leikatriðum og það bar loks árangur á 102. mínútu.

Nathaniel Brown tók þá frábæra hornspyrnu á fjærstöngina þar sem Jonathan Tah var mættur og stangaði boltann af krafti í netið.

Við fyrstu sýn virtist ekkert athugavert við markið og Þjóðverjar fögnuðu ákaft. Þegar komið var að því að taka miðju stöðvaði dómarinn hins vegar leikinn og var kallaður að VAR-skjánum.

Þar var skoðað mögulegt brot Waldemar Anton á Orlando Gill, markverði Paragvæ. Það virtist rosalega lítið í þessu og Gill virtist sækja snertinguna. Anton stóð fyrir framan markvörðinn, fór lítillega utan í hann og Gill féll í grasið.

Markið var á endanum dæmt af og báðir þjálfarar fengu að líta gula spjaldið í æsingnum sem fylgdi í kjölfarið.

„Ja hérna, sóknarbrot á Waldemar Anton. Þetta er umdeilanlegt svo sannarlega. Hvor framkallar snertinguna? Kannski leggst hann aðeins í hann en þetta er mikið álitamál en um leið og hann er sendur í skjáinn þá var þetta óumflýjanleg niðurstaða,“ sagði Hörður Magnússon í lýsingunni á RÚV.

Hægt er að sjá markið og brotið hér fyrir neðan.

Sjáðu atvikið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.