Atli Þór eftir tvennu: Helvíti erfitt að horfa á þann leik uppi í stúku


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA tók á móti Fram á ELKEM vellinum í lokaleik 12. umferðar Bestu deildar karla og lauk leiknum með 0-2 sigri Fram. Fótbolti.net heyrði í Atla Þór Jónassyni, leikmanni Fram, sem skoraði bæði mörk Fram og var maður leiksins.
„Tilfinningin eftir leik er mjög góð, þetta var hörkuleikur og við vissum að hann yrði physical og við mættum bara í leikinn alveg frá byrjun og hann endaði með 0-2 sigri. Planið var auðvitað að vinna leikinn fyrst og fremst og vera mjög physical sem við gerðum og það skilaði sigrinum.''
Atli Þór skoraði tvö mörk í dag og er orðinn markahæsti leikmaður Fram liðsins með sjö mörk í Bestu deildinni. Atli tók vítið sem Róbert Hauksson fiskaði en fyrirliðinn Kennie Chopart var einnig á vellinum.
„Það er auðvitað alltaf gaman að skora mörk og það er það sem Framherjar eiga að gera þannig ég er sáttur við dagsverkið. Já núna er ég vonandi búinn að taka við sem vítaskyttan í liðinu en það er mjög gaman að fá að taka þessi víti.''
Atli spilaði ekki síðasta leik gegn Víkingi þar sem hann er á láni frá liðinu og þurfti því að horfa upp á 0-5 tap Fram.
„Það var helvíti erfitt að horfa á þann leik uppi í stúku en bara geggjað að fá að spila aftur. Við erum ekkert að spá í töflunni ein og hún er núna, við erum bara að spá í næsta leik sem er gegn Keflavík. Það þýðir ekkert að spá í það hversu mörgum stigum við erum á undan næsta liði.''
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum að ofan.




