Fotbolti.net
29.06.26 - 21:59
Brynjar Ingi Erluson

Gabríel Snær farinn til Svíþjóðar

Gabríel Snær farinn til Svíþjóðar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gabríel Snær Gunnarsson lék sinn síðasta leik fyrir ÍA í bili, í kvöld, en hann gengur formlega í raðir sænska félagsins Elfsborg þann 1. júlí.
Gabríel Snær til Elfsborg (Staðfest)
TENGT EFNI

Gabríel Snær til Elfsborg (Staðfest)

Gabríel er 17 ára gamall og uppalinn hjá ÍBV en gekk í raðir ÍA þegar hann var í 4. flokki.

Hann spilaði sinn 35. meistaraflokksleik í 2-0 tapinu gegn Fram í kvöld.

Elfsborg náði samkomulagi við ÍA um kaup á Gabríel fyrr á árinu og lengi hefur legið fyrir að hann myndi ganga í raðir sænska félagsins þann 1. júlí.

Hann lék því kveðjuleik sinn fyrir ÍA í kvöld og hafa Skagamenn nú kvatt hann á samfélagsmiðlum sínum.

„Gabríel hefur mikinn metnað, hann er frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur, leggur sig alltaf fram og við hlökkum til þess að fylgjast með honum áfram í Svíþjóð!“ segir í tilkynningu Skagamanna.

Gabríel, sem er sonur fyrrum landsliðsmannsins Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, á sjálfur 16 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.