Lengjudeildin: Holtan með þrennu er Afturelding slátraði Ægi

Holtan skoraði þrennu og er markahæstur í Lengjudeildinni

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stefan Dabetic fékk rautt spjald hjá Ægi

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Afturelding 8 - 1 Ægir
1-0 Joacim Emil Godhei Holtan ('2 )
2-0 Sævar Atli Hugason ('37 )
2-1 Bjarki Rúnar Jónínuson ('45 )
3-1 Joacim Emil Godhei Holtan ('49 )
4-1 Joacim Emil Godhei Holtan ('55 )
5-1 Óðinn Bjarkason ('59 )
6-1 Róbert Agnar Daðason ('67 )
7-1 Óðinn Bjarkason ('77 )
8-1 Aron Elí Sævarsson ('89 )
Rautt spjald: Stefan Dabetic, Ægir ('61) Lestu um leikinn

Afturelding kom sér upp í annað sæti Lengjudeildarinnar með 8-1 stórsigri á Ægi á Malbikstöðinni að Varmá í kvöld. Norski framherjinn Joacim Holtan skoraði þrennu og er nú markahæstur í deildinni.
Mosfellingar fengu draumabyrjun þegar Holtan skoraði fyrsta markið eftir tæplega tveggja mínútna leik. Sigurður Óli Guðjónsson átti þá hræðilega sendingu til baka á Ómar Castaldo í marki Ægis. Ómar lenti í baráttu við Holtan um boltann en Norðmaðurinn hafði betur og kom Aftureldingu yfir.
Ægismenn voru í miklu basli varnarlega framan af leik. Þeir töpuðu boltanum á vondum stöðum og áttu fleiri slakar sendingar til baka á Ómar.
Sævar Atli Hugason tvöfaldaði forystuna á 37. mínútu áður en Ægir minnkaði muninn rétt fyrir leikhlé. Bjarki Rúnar Jónínuson keyrði þá inn á teig Aftureldingar og átti skot sem Arnar Daði Jóhannesson átti ekki möguleika á að verja.
Í síðari hálfleik rúllaði Afturelding yfir Ægi. Holtan skoraði tvö mörk á sex mínútna kafla og fullkomnaði þar með þrennuna.
Í fyrra markinu komst Sævar Atli inn í slæma sendingu til baka, lyfti boltanum yfir Ómar áður en Sigurður Óli hreinsaði boltann í Holtan og þaðan í netið.
Holtan fullkomnaði svo þrennuna eftir enn einn furðulegan varnarleik Ægis. Stefan Dabetic var í vandræðum í eigin teig, Holtan mætti og tæklaði boltann í netið. Þetta var áttunda deildarmark hans á tímabilinu og hann er nú markahæstur í Lengjudeildinni.
Óðinn Bjarkason bætti við fimmta marki Aftureldingar á 59. mínútu áður en Dabetic var rekinn af velli stuttu síðar fyrir glórulausa hegðun. Hann var í baráttu við Bjart Bjarma Barkarson, sem féll í grasið, og steig Dabetic þá á höfuð hans. Hann uppskar rautt spjald og kórónaði þar með afleita frammistöðu sína.
Afturelding bætti við þremur mörkum til viðbótar áður en flautað var til leiksloka. Róbert Agnar Daðason skoraði fyrir galopnu marki og Óðinn gerði síðan sjöunda mark heimamanna með skalla eftir hornspyrnu.
Aron Elí Sævarsson skoraði síðasta mark leiksins á 89. mínútu þegar hann stangaði hornspyrnu Trausta Þráinssonar í netið.
Stórglæsilegur sigur hjá Aftureldingu en afleit frammistaða hjá gestunum, sem gerðu hver varnarmistökin á fætur öðrum. Afturelding fer upp í annað sæti deildarinnar með 22 stig en Ægir er í næstneðsta sæti með 8 stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Þróttur R. | 11 | +13 | 23 |
| 2 | Fylkir | 11 | +4 | 21 |
| 3 | Vestri | 12 | +2 | 20 |
| 4 | Afturelding | 10 | +8 | 19 |
| 5 | HK | 11 | +2 | 19 |
| 6 | Leiknir R. | 11 | +2 | 18 |
| 7 | Njarðvík | 11 | +2 | 14 |
| 8 | Grótta | 10 | -5 | 13 |
| 9 | ÍR | 11 | -6 | 11 |
| 10 | Grindavík | 10 | -3 | 9 |
| 11 | Ægir | 11 | -8 | 8 |
| 12 | Völsungur | 11 | -11 | 7 |