Birkir Már fór aftur í tímann: Gæsahúðar móment


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var þetta fullkomin frammistaða?
„Næstum því, það var svona kannski eitthver smá partur í fyrri hálfleik sem var ekki alveg nógu góður, þeir ná að skora þarna. Mér fannst við aðeins of afslappaðir eftir að við komumst í tvö núll en að öðru leyti bara mjög fínn leikur og góð liðsframmistaða."
Birkir var með stoðsendingu gegn Ægi, í síðasta leik var hann með stoðsendingu og mark.
„Þetta er búið að ganga vel upp á síðkastið og mér líður vel og gaman að spila fyrir Aftureldingu. Þannig að ég er bara hæst ánægður með lífið núna."
Á laugardaginn voru 10 ár síðan Ísland vann England í Nice.
„Þetta er alltaf svona gæsahúðar móment þegar maður sér fréttir af þessu og svoleiðis. Maður reynir alltaf að horfa á allt sem kemur. Ég sá að það kom eitthver heimildarmynd og maður gluggaði aðeins í það aftur og fór aðeins aftur í tímann. Eins og ég segi ótrúlega stoltur að hafa afrekað það sem ég hef gert á fótboltaferlinum og svo bara gaman að vera enn þá að sprikla."
Var leikurinn hápunktur ferilsins?
„Algjörlega, þessi ár þarna í kringum stórmótin eru náttúrulega bara eitthvað sem ég hélt að ég myndi aldrei afreka í fótbolta þegar ég var yngri. Ég er bara ótrúlega stoltur af því og það eru klárlega hápunktarnir."




