Casemiro þakkaði traustið og var valinn maður leiksins

Mynd: FIFA

Mynd: FIFA
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro var valinn maður leiksins í 2-1 sigri Brasilíu á Japan í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í kvöld.

TENGT EFNI
HM: Martinelli hetja Brasilíu í blálokin
Casemiro átti alls ekki góðan fyrri hálfleik. Hann fékk gult spjald snemma leiks og var að eiga mjög slakan leik á miðsvæðinu.
Carlo Ancelotti hefði vel getað kippt honum af velli í hálfleik en ákvað að hafa hann áfram inni á vellinum og sér ekki eftir því. Casemiro jafnaði metin með skalla, skömmu eftir að Japanir höfðu bjargað ótrúlega á marklínu.
FIFA valdi hann mann leiksins en Casemiro hafði sjálfur endalausa trú á því að Brasilía myndi koma til baka og vinna leikinn.
„Við unnum þetta á ró, þolinmæði og pressu gegn liði sem spilaði mjög aftarlega á vellinum. Það mikilvægasta var róin og trúin á að þetta myndi koma og að við myndum skora. Sjálfstraustið og pressan voru lykilatriði.“
„Ég er mjög tilfinningaríkur. Maður biður Guð um að vísa sér veginn og auðvitað verð ég líka að hrósa Gabi (Martinelli), sem kláraði þetta.“
„En eins og ég segi, þá eru margar tilfinningar í gangi á sama tíma og maður verður að kunna að meta allan hópinn sem heild. Martinelli með sigurmarkið og Endrick þarna líka. Þetta er leiðin til að vinna HM,“ sagði Casemiro.