Fotbolti.net
29.06.26 - 20:25
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ítrekar að Diomande sé ekki til sölu - „Stöndum fast á því“

Ítrekar að Diomande sé ekki til sölu - „Stöndum fast á því“
Canon

Mynd: EPA

Fílabeinsstrendingurinn Yan Diomande er ekki til sölu í sumar en þetta segir Marcel Schafer, yfirmaður íþróttamála hjá þýska félaginu RB Leipzig í samtali við BILD.
Diomande velur PSG fram yfir Liverpool
TENGT EFNI

Diomande velur PSG fram yfir Liverpool

Diomande, sem er 19 ára gamall, hefur valið Paris Saint-Germain fram yfir Liverpool og hefur þegar samið um kaup og kjör við franska félagið.

Liverpool leitar nú annað að styrkingu, en það er þó alls ekki víst að Diomande fari yfir höfuð frá Leipzig í þessum glugga.

Afstaða Leipzig er skýr. Diomande á að vera áfram, en samkvæmt erlendum fjölmiðlum er staðan ekki alveg jafn afgerandi og Schafer lætur hljóma. Talið er að Leipzig sé reiðubúið að setjast að samningaborðinu ef stórt tilboð berst.

Talað hefur verið um að slíkt tilboð þyrfti að vera í kringum 120 til 130 milljónir evra.

„Yan Diomande mun spila fyrir RB Leipzig á næsta tímabili og við stöndum fast á því. Sá tími mun koma þegar við leyfum Diomande að taka næsta skref, en það verður ekki á þessu ári,“ sagði Schafer.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.