Fotbolti.net
29.06.26 - 19:05
Brynjar Ingi Erluson

HM: Martinelli hetja Brasilíu í blálokin

Brasilíumenn eru komnir áfram eftir mikla dramatík

Brasilíumenn eru komnir áfram eftir mikla dramatík

Canon

Mynd: EPA

Brasilía 2 - 1 Japan
0-1 Kaishu Sano ('29 )
1-1 Casemiro ('56 )
2-1 Gabriel Martinelli ('90 )
Brasilía er komin í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins eftir hádramatískan 2-1 sigur á Japan á NRG-leikvanginum í Houston í Texas í kvöld. Sigurmarkið kom í blálokin.

Japanir lögðu upp með varnarsinnað leikplan og ætluðu sér greinilega ekki að gefa nein færi á sér. Leikurinn opnaðist þó aðeins þegar leið á fyrri hálfleikinn.

Zion Suzuki, markvörður Japans, átti nokkuð þægilega vörslu á 13. mínútu og var það eina hættulega færið fyrir fyrri vatnspásu. Japanir komu sterkir til baka eftir pásuna og Ayase Ueda skallaði yfir markið áður en þeir komust óvænt yfir.

Danilo tapaði boltanum á slæmum stað þegar hann reyndi sendingu inn á miðsvæðið. Kaishu Sano keyrði fram völlinn og ákvað að láta vaða rétt fyrir utan teig. Skotið var hnitmiðað, niðri í vinstra hornið, og framhjá Alisson sem teygði sig en náði ekki til boltans.

Brasilíumenn náðu ekki að svara fyrir leikhlé en hálfleiksræða Carlo Ancelotti virðist hafa skilað sér, því þeir mættu mun áræðnari til leiks í síðari hálfleik.

Endrick kom inn fyrir Lucas Paqueta, sem virtist finna fyrir einhverjum eymslum, og var það eina breytingin í hálfleiknum.

Brassar sköpuðu sér hvað eftir annað góðar stöður. Bruno Guimaraes kom í seinni bylgjunni inn í teiginn og stangaði boltann að marki en Suzuki sá við honum. Stuttu síðar björguðu Japanir ótrúlega á marklínu.

Casemiro fékk dauðafæri þegar hann skallaði að marki af stuttu færi. Boltinn fór af varnarmanni, í Suzuki og þaðan út áður en Japanir náðu að hreinsa frá.

Eitthvað hlaut að láta undan og tveimur mínútum síðar kom jöfnunarmarkið. Gabriel fékk boltann rétt fyrir utan teiginn og skrúfaði frábæra fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Casemiro var mættur og stangaði boltann í netið.

Vinícius Júnior var svo hársbreidd frá því að skora eitt flottasta mark mótsins aðeins skömmu eftir jöfnunarmarkið. Hann átti ótrúlega fyrstu snertingu í gegnum klofið á Takehiro Tomiyasu, lék inn á teiginn og hlóð í skotið en Suzuki varði stórkostlega í stöngina. Leikurinn var heldur betur vaknaður til lífsins.

Brasilíumenn sköpuðu sér minna eftir seinni vatnspásuna en voru áfram mun líklegri til að finna sigurmarkið. Það vantaði þó herslumuninn í sóknarleikinn og Japanir héldu út.

Allt stefndi í framlengingu en þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma kom sigurmarkið. Sanngjarnt miðað við gang leiksins.

Guimaraes fékk þá boltann við vítateigslínuna og laumaði honum inn á Gabriel Martinelli, sem setti boltann út við hægri stöngina. Suzuki komst í boltann en náði ekki að halda honum frá markinu.

Ótrúleg dramatík í Houston og Brasilíumenn eru komnir áfram í 16-liða úrslit, þar sem þeir mæta annað hvort Fílabeinsströndinni eða Noregi. Japanir falla hins vegar enn á ný úr leik í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.
Japan komst óvænt yfir í leiknum

Japan komst óvænt yfir í leiknum

Canon

Mynd: EPA

Úr leiknum í kvöld

Úr leiknum í kvöld

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.