Besta deildin: Atli Þór kom Fram aftur á sigurbraut

Atli Þór skoraði bæði mörk Fram og hér fagnar hann öðru þeirra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leiknum í kvöld

Framarar komu sér aftur á sigurbraut í Bestu deild karla með 2-0 sigri á ÍA á ELKEM-vellinum á Akranesi í kvöld. Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörk gestanna með stuttu millibili í fyrri hálfleik.
Gestirnir voru hættulegri í upphafi leiks. Fred Saraiva, Atli Þór og Róbert Hauksson fengu allir ágæt færi og markið lá í loftinu.
Þegar rúmar átján mínútur voru liðnar brutu Framarar ísinn. Atli fékk háan bolta sem hann skallaði á Róbert, sem kom honum í hlaupaleið Atla. Hann kláraði færið vel og setti boltann í nærhornið.
Framarar bættu við öðru marki þremur mínútum síðar. Israel Garcia kom boltanum inn á teiginn þar sem Erik Tobias Sandberg og Jón Sölvi Símonarson virtust hikandi. Jón Sölvi fór á endanum út úr markinu, braut á Róberti og vítaspyrna var dæmd.
Atli Þór fór á punktinn og skoraði með laglegri spyrnu niðri í vinstra hornið. Jón Sölvi var ekki langt frá því að verja en boltinn endaði í netinu.
Forysta Fram í hálfleik var sanngjörn, þó gestirnir hafi aðeins slakað á síðustu fimmtán mínútur fyrri hálfleiksins.
Í síðari hálfleik náðu heimamenn lítið að skapa sér. Fram gerði vel í að halda boltanum og róa leikinn niður.
Skagamenn náðu ekki að ógna að ráði fyrr en á síðustu mínútunum. Þeir fengu þá þrjú ágæt færi og í því þriðja bjargaði Kennie Chopart á marklínu. Þar skall hurð nærri hælum hjá Frömurum, sem náðu þó að halda út og halda hreinu.
Framarar eru því aftur komnir á sigurbraut og eru nú með 26 stig í 3. sæti deildarinnar. ÍA er með 15 stig í 7. sæti og hefur tapað tveimur leikjum í röð.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 13 | +38 | 37 |
| 2 | KR | 13 | +14 | 28 |
| 3 | Fram | 11 | +5 | 23 |
| 4 | Breiðablik | 12 | +6 | 19 |
| 5 | Valur | 13 | -2 | 19 |
| 6 | ÍA | 11 | -5 | 15 |
| 7 | Keflavík | 12 | -6 | 15 |
| 8 | Stjarnan | 13 | -3 | 14 |
| 9 | ÍBV | 12 | -5 | 12 |
| 10 | KA | 12 | -8 | 10 |
| 11 | FH | 12 | -13 | 7 |
| 12 | Þór | 12 | -21 | 7 |