Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 09. júlí 2021 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guðlaugur Victor gerður að varafyrirliða Schalke
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Victor Pálsson gekk í sumar í raðir Schalke frá Darmstadt.

Bæði lið leika í 2. Bundesliga en Schalke er talsvert stærra félag og stefnir upp í efstu deild aftur eftir að hafa fallið úr efstu deild á liðinni leiktíð.

Victor er orðinn varafyrirliði liðsins og Danny Latza er fyrirliði. Báðir komu þeir til félagsins í sumar. Latza kom frá Mainz.

Fyrsti leikur Schalke í deildinni er gegn HSV eftir tvær vikur.

Victor er þrítugur miðjumaður sem á að baki 26 A-landsleiki.


Athugasemdir
banner
banner