Sölvi Vatnhamar er ánægður með stuðninginn: Komum úr litlum bæ


Mynd: sosialurin.fo


Mynd: sosialurin.fo
„Erfiður leikur, við byrjum vel. Eitt núll yfir og svo gefum við burt víti úr skyndisókn. Við þurfum að halda áfram, tala um það að halda áfram og gera það sama" sagði Sölvi Vatnhamar, fyrirliði Víkingur Götu eftir tap gegn Stjörnunni á Samsungvellinum.
„Við vorum með ágæta stjórn í fyrri hálfleik, við vorum góðir á köflum, við þurfum að gera meira þannig. En í seinni hálfleik urðu þeir betri og við vorum verri á boltanum. Svo fáum við á okkur tvö fleiri mörk og þá erum við í erfiðari stöðu fyrir næsta leik."
Ertu ánægður með frammistöðuna í dag?
„Stundum í leiknum spiluðum við eins og við vildum spila og reyndum að gera. En á köflum fórum við frá því, þá gerðum við mistök. Gáfum burt tvö víti í leik eins og þessum þá er erfitt að ná ásættanlegri niðurstöðu. Ég er svekktur með frammistöðuna."
Voru vítin klaufaleg og ódýr?
„Ég held að vítin voru ekki ódýr, ég held að dómarinn gerði rétt í báðum vítum. En ef þú horfir á það frá okkar sjónarhóli þá verðum við að gera betur. Í báðum vítum þá eru þeir að fara frá markinu og fá svo víti. Þetta var ekki gott hjá okkur."
Það heyrðist vel í stuðningsmönnum Víkings Götu í kvöld, jafnvel var Gunnar Vatnhamar yngri bróðir Sölva og leikmaður Víkings í stúkunni með stuðningsmönnunum.
„Við komum úr litlum bæ, svo ef að við getum fengið 60-70 manns með okkur til Íslands þá er það mjög mikið. Við erum ánægðir með þá, stuðningurinn var góður í dag."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan



