Fotbolti.net
09.08.15 - 19:40
Alexander Freyr Tamimi

Freyr Alexanders: Nenni ekki að væla yfir dómurunum

Auglýsing
Freyr var hundfúll í leikslok.

Freyr var hundfúll í leikslok.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Alexandersson, þjálfari Leiknis, var hundfúll eftir 2-0 tap sinna manna á heimavelli gegn ÍBV í Pepsi-deildinni í dag.

Heimamenn í Leikni áttu fjölmörg færi en tókst hins vegar ekki að nýta þau. Þurftu þeir að sætta sig við að detta niður fyrir ÍBV og í fallsæti.
„Það vantaði bara að skora mörk. Ég held að við höfum átt 17 marktækifæri en við töpum leiknum 2-0. Þetta er gersamlega óásættanlegt að fá ekkert út úr leiknum, að tapa og sýna vont \"attitude\" á löngum köflum. Við erum hundóánægðir og þrátt fyrir að hafa skapað urmul af færum náum við ekki að skora mark og erum drullufúlir,\" sagði Freyr eftir leikinn.



„Mér fannst bara margir kaflar þar sem þetta datt niður á lélegt plan. Fyrsta markið, miðað við það að það var dæmt brot á Óla Hrannar á 94. mínútu fyrir snertingu, þá var þetta brot á Brynjari Hlöðverssyni þegar þeir skora fyrsta markið, það er klárt,\" sagði Freyr.



Hann er á því að markaskorarinn Sito hefði átt að fá rautt spjald fyrir olnbogaskot í fyrri hálfleik, en hann fékk einungis að líta gula spjaldið.



„Er það ekki rautt spjald? Æi veistu, ég nenni ekki að væla yfir dómurunum. Við klúðruðum þessu sjálfir og olnbogaskot í leik er rautt spjald.\"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.