09.08.26 - 22:20
Sigurjón Árni Torfason
Árni ánægður: Gríðarlega mikilvæg varsla á ögurstundu
Auglýsing

Árni Marínó var ánægður að halda hreinu í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA tóku á móti á móti Þór á Elkem vellinum í 18 umferð Bestu deildar karla núna í kvöld. Leiknum lauk með sannfærandi 2-0 sigri heimamanna. Fótbolti.net voru að sjálfsögðu mættir á Akranes og náðu tali af Árna eftir leik.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 0 Þór
„Bara gríðarlega ánægður með liðsheildina í dag. Gott að ná loksins að halda hreinu. Það er langt síðan síðast hjá mér.”
Árni Marínó átti mjög góðan leik, var öruggur í öllum sínum aðgerðum og átti algjörlega frábæra vörslu sem gáfu upp endanlegar vonir Þórs.
„Bara geggjað. Það hefði verið helvíti súrt að fá á sig mark þarna upp úr litlu og þurfa einhvern veginn að klára síðustu mínúturnar í einhverju panikki 2-1 yfir. Það hefði verið erfitt, þannig að bara gríðarlega, gríðarlega mikilvæg varsla þarna á ögurstundu myndi ég segja."
Árni Marínó var að glíma við meiðsli, en hefur komið vel inn í Skagaliðið eftir meiðslin.
„Mjög gott að komast aftur í bolta. Þetta var orðið svolítið erfitt að fylgjast með þessu frá hliðarlínunni. Já og bara mjög, eins og ég segi, bara geggjað að spila fótbolta aftur.”
Sagði Árni við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.