Fotbolti.net
09.08.26 - 23:10
Hafþór Örn Laursen

Brazell léttur: Mun ekki fara heim og hoppa hæð mína af gleði

Auglýsing
Chris Brazell, þjálfari Vals

Chris Brazell, þjálfari Vals

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Chris Brazell var að vonum sáttur eftir sinn fyrsta sigur í Bestu deildinni með Val, þegar liðið sigraði Breiðablik 1-3 á Eikarvellinum.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 3 Valur
„Fyrst og fremst er þetta mikill léttir eftir seinustu vikur í deildinni. Liðið hefur átt skilið meira en 0 stig og mér fannst liðið skila inn frammistöðu sem ég sé á vellinum á hverjum degi, sem er alvöru vilji og liðsandi.''

Þetta er fyrsti sigur Chriz Brazell í deildinni sem þjálfari Vals.

„Ég segi nú kannski ekki að ég muni fara heim og hoppa hæð mína af gleði, ég dróg mögulega djúpt andann eftir lokaflautuna en þetta tímabil er ekki um mig, heldur liðið. Ég mun ekki segja að eftir að tapa fjórum leikjum í röð og vinna svo einn að ég sé besti þjálfari í heiminum.''

Albin Skoglund var ekki með í dag.

Albin hefur smá vandamál, hann verður lykilleikmaður fyrir okkur gegn Nordsjælland á fimmtudaginn svo ég þurfti að taka útreiknaða ákvörðun um hvort það væri þess virði að hætta honum eða ekki.''

Valur skoraði í raun fjögur mörk, en það var dæmt af útaf vitlausu innkasti í aðdraganda.

„Mér fannst þetta kannski skrýtin ákvörðun hjá dómaranum en á sama tíma fannst mér dómarinn ekki slæmur í kvöld og mér fannst leikurinn hvorki unninn né tapaður vegna hans.

Sumargluggi Bestu deildarinnar lokar 12. ágúst næstkomandi og var Chris spurður út í hvort hann eða stjórnin hafi augastað á leikmönnum.

„Ég hef ekki þannig samband við stjórnina, þessi spurning er fyrir hana og næsta þjálfara. Eina sem ég fókusa á er liðið sem ég þjálfa svo mér er í raun sama um hvort einhver komi inn eða ekki.''

Valur spilar við Nordsjælland úti í Danmörku 13. ágúst næstkomandi.

„Þetta verður erfiður leikur en ég held ekki að úrslitin heima voru ekki neikvæð heldur, mér fannst við spila betur gegn þeim heldur en gegn [Zrinjski] Mostar í báðum leikjunum. Við komum með sjálfstraust í erfiðan leik á fimmtudaginn en við getum sýnt að Valur og íslenskur fótbolti getur keppt á þessu stigi.''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.