Fotbolti.net
09.08.26 - 08:28
Elvar Geir Magnússon

FIFA segir aðför gerða að Infantino

Infantino er um þessar mundir að heimsækja Kólumbíu. Hér er hann með Alejandro Eder borgarstjóra Cali í heimsókn í fótboltaskóla.

Infantino er um þessar mundir að heimsækja Kólumbíu. Hér er hann með Alejandro Eder borgarstjóra Cali í heimsókn í fótboltaskóla.

Canon

Mynd: EPA

Alþjóðafótboltasambandið FIFA sendi frá sér yfirlýsingu þar sem það fordæmir skipulagða ófrægingarherferð gegn forsetanum Gianni Infantino. Það segir aðför gerða að Infantino til að reyna að koma honum frá völdum.

FIFA segir að fréttaflutningur fullur af rangfærslum sé notaður til að reyna að grafa undan Infantino og sambandinu.

„Það verður sífellt ljósara að markvissar og viðvarandi tilraunir eru gerðar til að grafa undan FIFA og forseta sambandsins," segir meðal annars í yfirlýsingunni.
Noregur kallar eftir afsögn Infantino - „Rúinn trausti“
TENGT EFNI

Noregur kallar eftir afsögn Infantino - „Rúinn trausti“

Þöggunargreiðslur greiddar til ástkonu?
Yfirlýsingin kemur í kjölfar fréttaflutnings enska blaðsins Daily Telegraph þar sem því er haldið fram að UEFA hafi borgað konu þöggunargreiðslu eftir að hún átti í ástarsambandi með Infantino þegar hann starfaði sem framkvæmdastjóri sambandsins.

Talsmaður FIFA sagði við fjölmiðilinn að Infantino neiti þessum ásökunum alfarið og ekkert sannleiksgildi sé í þeim.

Andstaðan við Infantino að mestu frá Evrópu
Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.

UEFA, fótboltasamband Evrópu, hefur tekið harða afstöðu og mótmælt Infantino. UEFA hefur meðal annars hótað því að sniðganga HM en andstaðan við Infantino er langmest innan Evrópu. Í Suður-Ameríku og Afríku hefur hann til að mynda víðtækan stuðning og Mexíkó kom með stuðningsyfirlýsingu á dögunum.
FIFA segir aðför gerða að Infantino
Canon

Mynd: EPA

FIFA segir aðför gerða að Infantino
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.