Fotbolti.net
07.08.26 - 09:17
Elvar Geir Magnússon

Mexíkó lýsir yfir stuðningi við Infantino

Infantino á áfram sína dyggu stuðningsmenn.

Infantino á áfram sína dyggu stuðningsmenn.

Canon

Mynd: EPA

Mexíkó hefur lýst yfir stuðningi við Gianni Infantino, forseta FIFA, þó hann hafi fengið gagnrýni frá Concacaf, sambandinu sem Mexíkó tilheyrir.

Spjót hafa beinst að Infantino og þar hefur UEFA, fótboltasamband Evrópu, verið í fararbroddi. UEFA hefur sagt að það sé ekki út af borðinu að sniðganga HM þrátt fyrir að FIFA hafi hætt við áætlanir um að hleypa utanaðkomandi fjárfestum að innviðum sambandsins.
UEFA lætur skoða hvort það hafi verið maðkur í mysu Infantino
TENGT EFNI

UEFA lætur skoða hvort það hafi verið maðkur í mysu Infantino

„Mexíkó styður forystu Infantino forseta við að halda áfram að efla þróun fótboltans með því að styrkja undirstöður hans," segir í yfirlýsingu mexíkóska sambandsins.

Infantino á áfram dygga stuðningsmenn. Argentínska fótboltasambandið hefur hrósað honum fyrir að „gera sér grein fyrir mistökum og leiðrétta þau". Þá hefur afríska fótboltasambandið lýst yfir stuðningi við hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.