Halli ósáttur með rauða spjaldið: Tók mikla orku frá okkur

Conteh fékk rauða spjaldið.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Conteh fékk rauða spjaldið.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Átti Keflavík skilið meira úr leiknum?
„Kannski ekki hvernig leikurinn þróast, nei. við lentum manni undir nokkuð snemma í leiknum og það var erfitt fyrir okkur. En hrikalega stoltur af liðinu, menn börðust og fórnuðu sér, köstuðu sér fyrir allt. Fáum svo sem í lokin séns til þess að jafna en gerum það ekki og töpum."
Var frammistaðan góð þrátt fyrir að vera einum manni færri?
„Frammistaðan var að því leyti að við vorum tilbúnir til þess að hlaupa og berjast, var mjög góð. Áttum í erfiðleikum með að halda í boltann einum færri og það tók mikla orku frá okkur. Að sama skapi þá er alltaf eitt núll, þá er alltaf séns en náum ekki að nýta það sem við fáum."
Egill Valur Karlsson, 17 ára varnarmaður byrjaði í dag sinn fyrsta leik fyrir Keflavík.
„Frábær leikur hjá honum, gaman að sjá hann."
Þorlákur Breki Þ. Baxter meiddist í upphitun, Ernir Bjarnason byrjaði í staðinn fyrir hann.
„Hann var eitthvað að ströggla eftir síðasta leik, var búinn að æfa lítið og var með aðeins í kálfanum og fann það í upphitun að þetta myndi ekki ganga."
Á 7. mínútu fóru þrjú gul spjöld á loft, Alpha Conteh og Sindri Snær, leikmenn Keflavíkur fengu báðir gult.
„Mér finnst það eigi ekki að þurfa að vera en ég nenni ekki að kommenta á það núna."
Á 34. mínútu fór Conteh í tæklingu og fékk annað gult og þar með rautt. Fannst þér annað gula spjaldið á Conteh vera ósanngjarnt?
„Mér fannst það, klárlega."
Ætlar Keflavík að styrkja sig meira í sumar?
„Já ég á von á því."


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
