Óðinn Bjarka spáir í 18. umferð Bestu deildarinnar

Óðinn Bjarkason.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Birnir Snær Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gyrðir með sína ljósu lokka.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Óskar brosir sínu breiðasta í stúkunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökullinn bráðnar ekki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Líklegt dagsins

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Dáðasti sonur Mosfellsbæjar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn spáir KR sigri í stórleik umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn hefur leikið vel með Aftureldingu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Óðinn Bjarkason.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Óðinn Bjarkason, leikmaður Aftureldingar, tók að sér það verkefni að spá í leikina sem framundan eru og henti í þessa virkilega skemmtilegu spá:
Verður hörkuleikur á Samsung-teppinu. Alpha Conteh mætir tvíefldur til leiks og mun ganga berserksgang gegn sínum gömlu félögum. Leikurinn byrjar rólega þangað til Alpha Conteh skorar á 30. mínútu eftir frábært samspil við Ljubicic. Conteh hleypur að Silfurskeiðinni og fagnar með því að sussa. Rétt fyrir hálfleik mun svo allt sjóða upp úr milli Breka Baxter og Gumma Baldvins, þar sem Alpha Conteh neyðist til að stíga á milli þeirra og stoppa slagsmálin. Jón Þór tekur stórræðu í hálfleik, stillir sína menn af og minnir þá á, með rámri röddu, að fótboltaleikur er 90 mínútur plús. Birnir Snær, nýkominn úr ferskri skeiningu leggur upp tvö mörk í seinni hálfleik þar sem Emil Atla skorar með skalla. Ljúflingurinn Alex Þór Hauksson fær þá gölnu hugdettu á 93. mínútu að henda í einn þrumufleyg af 30 metrum sem endar inni. Bjarki Hauks missir sig í fagnaðarlátunum, hrindir einum manni og öðrum og uppsker beint rautt spjald. Lokatölur 2-1.
ÍA 1 - 2 Þór (18:00 í kvöld)
Fyrir leik hafði mér borist til eyrna að Lárus Orri hefði eytt stuttu fríi með fjölskyldunni fyrir norðan og neyðst til að fá far með Þórsrútunni upp á Skaga. Lárus sá sér leik á borði og æsti vel upp í Þórsurunum alla leiðina en aftur á móti leiddi það til þess að Þórsarar mættu tvíelfdir til leiks. Þetta verður hins vegar leikur fyrir „pjúristana“. Sólin lætur sjá sig, sem hentar Markúsi Páli vel. ÍA tekur miðjuna og spilar tvær sendingar niður og svo einn langan bolta upp. Markús kemst einn í gegn og leggur hann snyrtilega í hornið.Gyrðir Hrafn gírast illa vel upp og verður iðinn við kolann það sem eftir er leiks. Leikurinn verður ekki bragðgóður, líkt og árið 1983 þegar liðin auglýstu Maribo og Pepsi framan á búningum sínum. Langt fram eftir verður þetta ekki mikið fyrir augað, allt þar til Gyrðir skorar á 83. mínútu með kröftugum skalla. Tveimur mínútum síðar skorar Atli Sigurjónsson úr „misheppnaðri“ fyrirgjöf. Gyrðir Hrafn reynir að stela markinu, rífur sig úr að ofan og sver upp á allt sem hann á að ljósu lokkarnir hafi sleikt boltann. Lokatölur 1-2.
Víkingur R. 4 - 1 ÍBV (18:00 í kvöld)
Mikið fjölmiðlafár verður fyrir leik þar sem Stígur Diljan mætir í heilgalla frá fatamerkinu Forever In Fashion í stað mætingargalla Víkinga. Fær hann væntanlega væna sekt fyrir vikið. Samt sem áður verða yfirburðir Audda Blö og hans manna of miklir og fara þeir létt með leikinn þrátt fyrir langan meiðslalista innan herbúða þeirra. Stígur svarar fyrir fatavalið og fer hamförum í leiknum ásamt Daða Berg. Stígur setur tvö stykki, Daði leggur þau bæði upp og setur eitt sjálfur. Óskar Bogga brosir sínu breiðasta í stúkunni og í hans stað kemur brosmildur Hrannar Snær inn á völlinn. Hrannar sýnir hundinn í sér og skorar eftir frábæran undirbúning frá Mosfellska prinsinum Róberti Orra. Annar Róbert, Róbert Elís, klórar í bakkann undir lokin fyrir Eyjamenn. Þung bátsferð heim fyrir Eyjamenn en Herjólfsskipið helst óbrennt. Lokatölur 4-1.
KA 0 - 2 FH (18:15 í kvöld)
Gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið þar sem þau þurfa bæði að sanna og sýna að þau eiga erindi í deild þeirra bestu. Ef sonur Andrésar stóra, Jökullinn, bráðnar ekki og sýnir sömu frammistöðu og í leiknum gegn KR-ingum labba Hafnfirðingar með öll þrjú stigin í pokanum heim. Jói Bjarna sýnir hversu megnugur hann er og klínir tuðrunni í skeytin. Jói er aftur á ferðinni og leggur upp á Guðmund Andra. Gandri fagnar með skemmtilegum dansi og fer það illa í Adam Ægi og Djuric sem arka að Gandra. Uppskera þeir allir þrír gult spjald. Lokatölur 0-2.
Breiðablik 2 - 1 Valur (20:15 í kvöld)
Hlutlaus maður, hann Birkir Már, spáði leiknum 0-5 fyrir Val og Patrick Pedersen fernu. Ég gaf honum einfalt svar „líklegt dagsins“. Stefán verður óvænt í marki Valsmanna og minnkar það bras Chris Brazell í deildinni. Breiðablik stillir upp ógnarsterku liði og ef allt fer eins og það á að fara eiga Blikar hreinlega að vinna leikinn þar sem Valur er í miðju Evrópueinvígi. Óli Valur stendur sig vel í leiknum og svífur upp hægri hlið vallarins eins og honum er best lagið. Dagur Orri leggur hönd á plóg og setur eitt í fyrri hálfleik. Ólafur Ingi gerir taktíska breytingu í hálfleik, setur Ásgeir Orra inn og fær hann til að stíga mikið inn á miðsvæðið. Óli á svo flotta fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Ásgeir þakkar traustið, stekkur manna hæst og skallar hann í slánna og inn. Undir lokin kemst nýi USA maðurinn Thorleifur í gegn og neglir í þaknetið, fagnar því marki með Trump-dansi. Lokatölur 2-1.
Fram 2 - 4 KR (19:15 á morgun)
Ef allt verður eins og það á að vera verður mikið um mörk og leikurinn algjört augnakonfekt. Rúnar Kristinsson í banni mun ekki liggja undir feld upp í stúku og mun sjá til þess að stúkan hristist, með Ægi Jarl, einnig í banni, fremstan í fararbroddi. KR-liðið mun þó stýra gangi leiksins þar sem Hrafn Tómasson sleppir hárteygjunni, leyfir hárlokkunum að blakta um vindinn og stýrir allri umferð. KR bætir upp fyrir færanýtingu fyrri umferðar og Aron Sig sýnir enn og aftur af hverju hann er besti leikmaður deildarinnar. Hann skilar af sér léttu dagsverki, einungis tveimur mörkum og tveimur stoðsendingum. Bankamaðurinn Eiður Gauti, sem leggur upp úr því að vera fyrst og fremst góð manneskja, kemst á blað með skemmtilegri hælspyrnu. Þegar KR hefur komist tveimur mörkum yfir gengur dáðasti sonur Ægisfjölskyldunnar, hann Már Ægisson, á lagið og skorar og leggur upp á Kyle McLagan. Staðan helst þó ekki lengi jöfn þar sem Gabríel Hrannari á sprett upp völlinn og rennir honum á Luke Rae, sem stýrir honum listavel í markið. Dáðasti sonur Mosfellsbæjar, Jason Daði, skorar sitt fyrsta mark fyrir KR, hleypur upp í stúku í geðshræringu og fellur í faðma föður síns, Svanþórs Einarssonar. Lokatölur 2-4.
Fyrri spámenn:
Damir Muminovic (4 réttir)
Elmar Kári (4 réttir)
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Tómas Óli (3 réttir)
Daníel Freyr (3 réttir)
Tómas Guðmunds (3 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Mattías Kjeld (2 réttir)
Viðar Örn (2 réttir)
Helga Rut (2 réttir)
Birkir Már (2 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)

Birnir Snær Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gyrðir með sína ljósu lokka.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Óskar brosir sínu breiðasta í stúkunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökullinn bráðnar ekki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Líklegt dagsins

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Dáðasti sonur Mosfellsbæjar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn spáir KR sigri í stórleik umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn hefur leikið vel með Aftureldingu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
