Gunnar Heiðar: Hef engar áhyggjur af þessu
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<i>„Það voru bara Vestmannaeyingar sem trúðu þessu ekki, en við trúðum þessu alla leið, enda sýndum við það, við vorum bara mun sterkari aðilinn í dag,\"</i> sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður ÍBV, eftir 3-0 sigur liðsins á KR í Pepsi-deild karla.
„Ég var einmitt að hugsa þetta um daginn. Þetta er svolítið með ÍBV liðið alveg sama hvort það sé karla eða kvenna eða fótbolta eða handbolta, við þurfum alltaf að vera með bakið upp við vegg til að gera eitthvað. Ætli það sé ekki spennustigið, við viljum hafa þetta svolítið skemmtilegt og svona krefjandi verkefni. Enn ég meina það eru fjórir leikir, það er nóg eftir og við erum ekkert ennþá safe. Eins og ég segi ef við spilum eins og menn og gerum þetta eins og við gerðum í dag þá hef ég engar áhyggjur af þessu. Ég hef ekkert enn þá áhyggjur af þessu og hafði það ekki heldur fyrir leikinn. Ég vissi svo sem alveg að við gætum þetta og við gerðum það í dag og sýndum það í dag, að við getum bjargað okkur.\"
„Ef maður fer yfir þessa leiki þá var þetta rosalega oft leikir sem við vorum inn í eða með tök á og missum svo niður í jafntefli eða tap eða hvað það er. Við vorum að gera aulaleg mistök á vitlausum mómentum í leikjunum og það bara kostar svolítið mikið og kostar þessi stig að við gætum verið mun ofar. Það þýðir ekkert að pæla í því núna. Við erum í þessari stöðu sem við erum í núna og við þurfum bara að reyna að koma okkur út úr því sem fyrst náttúrulega. Svo getum við farið yfir tímabilið eftir tímabilið og séð svona hvað við getum gert betur fyrir næsta ár.\"
„Við erum rosalega góðir stuðningsmenn þegar við erum öll saman í þessu. Við fundum það alveg í dag og þetta verður bara ÍBV dagur, þetta verður risastór ÍBV dagur. Ég held nú að stelpurnar séu líka að fara taka þetta á eftir þannig að þetta verður bara veisla í kvöld í Vestmannaeyjum.\"
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.