fim 09. september 2021 15:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Breiðabliks í stórleiknum: Birta kemur inn fyrir Heiðdísi
Birta Georgsdóttir
Birta Georgsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik mætir króatíska liðinu Osijek í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrri leikur liðanna endaði með 1-1 jafntefli í Króatíu fyrir rúmri viku síðan.

Sigurvegari leiksins í kvöld fer áfram í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum!!!

Byrjunarliðin hafa verið opinberuð og er ein breyting á liði Breiðabliks frá fyrri leiknum. Heiðdís Lillýardóttir er ekki í leikmannahópi Breiðablik og inn í liðið fyrir hana kemur Birta Georgsdóttir.

Miðað við vef UEFA fer Karitas Tómasdóttir í miðvörðinn við hlið Krístínar Dísar, Selma Sól Magnúsdóttir fer niður á miðjuna og Birta spilar úti hægra megin með þær Öglu Maríu Albertsdóttur úti vinstra megin og Tiffany Mccarthy fyrir miðju í þriggja manna sóknarlínu.

Vigdís Edda Friðriksdóttir, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Birna Kristjánsdóttir eru skráðir varamenn hjá Breiðabliki.

Byrjunarlið Breiðabliks:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
9. Taylor Marie Ziemer
13. Ásta Eir Árnadóttir (f)
16. Tiffany Janea Mc Carty
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
19. Birta Georgsdóttir
21. Hildur Antonsdóttir
27. Selma Sól Magnúsdóttir

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum!!!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner