Fotbolti.net
09.09.23 - 19:53
Anton Freyr Jónsson

Láki: Vonbrigði að tapa þessum leik

Auglýsing
Láki: Vonbrigði að tapa þessum leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Jafn leikur og mikið í húfi fyrir bæði lið þannig já gríðarlega vonbrigði að tapa þessum leik." sagði Þorlákur Már Árnason þjálfari Þórs eftir tapið gegn Gróttu á Vivaldivellinum í dag.

„Mér fannst Grótta aðeins meira ofan á í fyrri hálfleik en mér fannst við betri í seinni hálfleik og þetta var bara svona næstum því leikur. Sköpuðum okkur færi, rosalega góðar stöður en ekki nógu mikið af dauðafærum fannst mér til að klára leikinn og í síðari hálfleik fær Grótta eitt færi en mér fannst við spila vel í seinni hálfleik og það vantaði bara herslu muninn."

Hvað vantaði til að setja boltann yfir línuna? 

„Það vantaði bara stóru tánna og kannski ákvörðunartöku á síðasta þriðjung sem að vantaði og söknuðum líka aðeins Alexanders í þessum leik, mikið af fyrirgjöfum og svona og hann spilar bara þarna í lokin."

Alexander Már Þorláksson sóknarmaður Þórs spilaði aðeins þrettán mínútur í dag. Hvers vegna? 

„Hann er bara búin að vera meiddur. Við svona fundum það ekkert fyrr en seint í gærkvöldi svona einhverja lausn á að hann gæti spilað eitthvað og við ákvöðum að taka hann með og við erum að vona að hann nái þessu úr sér fyrir næsta leik."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.