Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 09. október 2019 09:40
Magnús Már Einarsson
Gylfi fyrirliði gegn Frökkum
Icelandair
Gylfi verður með fyrirliðabandið á föstudag.
Gylfi verður með fyrirliðabandið á föstudag.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Gylfi Þór Sigurðsson verður fyrirliði Íslands í leiknum gegn Frökkum á föstudag.

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði, er fjarri góðu gamni vegna meiðsla en hann fór í aðgerð á ökkla í gær.

Gylfi hefur áður verið fyrirliði í landsleikjum í fjarveru Arons og það sama verður uppi á teningnum á föstudag.

Gylfi mun því sitja fyrir svörum á fréttamannafundi á morgun ásamt Erik Hamren landsliðsþjálfara.

Leikurinn á föstudag er þýðingarmikill fyrir bæði lið en Ísland og Frakkland eru ásamt Tyrkjum að berjast um sætin tvö á EM á næsta ári.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner