Fotbolti.net
14.10.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Fékk rautt eftir VAR skoðun en spjaldið hefur verið fellt niður

Thomas Bramall dómari.

Thomas Bramall dómari.

Canon

Mynd: EPA

Rauða spjaldið sem Pascal Struijk, varnarmaður Brighton, fékk gegn Sunderland eftir VAR skoðun hefur verið fellt úr gildi.

Struijk var rekinn af velli á 57. mínútu leiksins eftir að hann hafði verið dæmdur brotlegur á Wilson Isidor, sóknarmanni Sunderland, sem reyndi að ná til stungusendingar.

Thomas Bramall dómari dæmdi ekki brot í fyrstu en VAR-dómarinn Neil Davies greip inn í og bað dómarann um að skoða atvikið.

Eftir að hafa skoðað endursýninguna ítrekað lyfti Bramall upp rauða spjaldin. Ákvörðunin vakti mikla undrun meðal leikmanna Brighton en hefur nú verið afturkölluð.

Brighton kvartaði og samþykkt var að brottvísunin hafi verið rangur dómur. Struijk, sem fór til Brighton frá Leeds í sumar, verður því klár í slaginn gegn Crystal Palace í úrvalsdeildinni um helgina.

Þrátt fyrir rauða spjaldið vann Brighton leikinn 2-0 og heldur þar með áfram sterkri byrjun sinni á tímabilinu. Liðið situr í þriðja sæti, fimm stigum á eftir toppliði Manchester City.

Pascal Struijk.

Pascal Struijk.

Canon

Mynd: Brighton

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.