Fotbolti.net
15.10.26 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað

Nýr vettvangur fyrir þróun í íslenskum fótbolta

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað, nýr íslenskur vettvangur sem tengir saman leikmenn, þjálfara, félög og sérfræðinga með það að markmiði að gera sérhæfða þekkingu og þjónustu í knattspyrnu aðgengilegri.

Á Bubka Sports Lab geta leikmenn og þjálfarar sótt sér þjónustu, fræðslu og sérhæfða þjálfun frá reynslumiklum þjálfurum og sérfræðingum á ólíkum sviðum knattspyrnunnar.
Ný íslensk þjónusta - „Þetta mun klárlega bæta þjálfun á landinu“
TENGT EFNI

Ný íslensk þjónusta - „Þetta mun klárlega bæta þjálfun á landinu“

Fjöldi þekktra íslenskra þjálfara og sérfræðinga koma að verkefninu og miðla þar reynslu sinni og þekkingu. Áherslan er ekki aðeins á það sem gerist inni á vellinum heldur einnig þá fjölmörgu þætti sem hafa áhrif á þróun og frammistöðu leikmanna og þjálfara.

Fyrir leikmenn verður hægt að sækja sérhæfða þjónustu á sviðum á borð við afreksþjálfun, styrktar- og hlaupaþjálfun, fyrirbyggjandi þjálfun, næringu, íþróttasálfræði og aðra þætti sem tengjast frammistöðu og þróun.

Fyrir þjálfara er markmiðið að skapa vettvang þar sem hægt er að sækja sér þekkingu óháð aldri, reynslu eða menntunarstigi. Þar verður meðal annars lögð áhersla á þjálffræði, leikgreiningu, Principle of Play, skipulag þjálfunar, kennslu á forritin og aðra sérhæfða þætti.

„Það er gríðarlega mikil þekking til staðar í íslenskri knattspyrnu en hún er dreifð. Hugmyndin með Bubka Sports Lab er að færa þessa þekkingu nær leikmönnum, þjálfurum og félögum og skapa einn vettvang þar sem fólk getur haldið áfram að þróast.
Markmiðið er ekki að koma í stað þess góða starfs sem þegar fer fram hjá félögunum, heldur að bæta við það,"
segir Hallgrímur Heimisson, stofnandi Bubka Sports Lab.

„Við viljum gera sérfræðiþekkingu aðgengilegri, skapa fleiri tækifæri fyrir leikmenn til að þróast, fleiri leiðir fyrir þjálfara að bæta sig, auka verðgildi þess að vera þjálfari og hjálpa félögum sem vilja gera enn betur og efla sitt afreksstarf. Það er ótrúlega gaman að sjá hugmynd sem byrjaði á blaði verða að raunverulegu fyrirtæki, vefsíðu, appi og þjónustu sem fólk getur farið að nýta sér."

Opnun Bubka Sports Lab markar fyrsta skrefið í stærra verkefni. Vettvangurinn verður áfram þróaður á næstu mánuðum og stefnt er að því að fjölga bæði þjónustu, sérfræðingum og möguleikum fyrir íslenska knattspyrnu.

Kjarninn í verkefninu er þó einfaldur:
Að gera góða þekkingu aðgengilegri og skapa fleiri tækifæri til þróunar í íslenskri knattspyrnu.

Bubka Sports Lab er nú opið fyrir leikmenn og þjálfara - bubkasportslab.com

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
Canon

Mynd: Bubka Sports Lab

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.