14.10.26 - 22:16
Brynjar Ingi Erluson
Martínez sendir frá sér yfirlýsingu

Lisandro Martínez

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Lisandro Martínez

Mynd: EPA
Argentínski varnarmaðurinn Lisandro Martínez hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir ummælin sem hann lét falla í viðtölum við Amazon Prime og CBS í gær.

TENGT EFNI
Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd
Martínez var heitt í hamsi eftir 2-0 tapið gegn Atlético og lét allt flakka í viðtali eftir leikinn.
Hann gagnrýndi Jason Wilcox, yfirmann fótboltamála hjá Manchester United, harðlega fyrir metnaðarleysi og taldi félagið ekki hafa gert nóg til að styrkja leikmannahópinn í sumar.
Ummælin hafa vakið mikil viðbrögð og hefur Martínez fengið að heyra það frá ýmsum sparkspekingum. Gagnrýnin hefur verið það mikil að Argentínumaðurinn sá sig knúinn til að senda frá sér yfirlýsingu á Instagram.
Þar biðst hann þó ekki beinlínis afsökunar á orðum sínum heldur útskýrir hvað lá að baki þeim og hversu miklar kröfur hann gerir til sjálfs sín og félagsins.
„Eftir allt sem hefur verið sagt um ummæli mín í gær vil ég útskýra betur hvað ég átti við og hvernig mér líður.“
„Ég talaði af reiði og pirringi eftir leikinn enda höfðum við ekki náð þeim úrslitum sem við vildum.“
„Þeir sem þekkja mig vita að fótbolti er líf mitt. Ég lifi fyrir þessa íþrótt, legg allt mitt í hana og vil alltaf vinna. Þegar hlutirnir ganga ekki upp þá tekur það á mann, sérstaklega þegar maður spilar fyrir jafn stórt og sögufrægt félag og Manchester United.“
„Orð mín endurspegla hvernig mér líður og hversu mikið ég vil sjá félagið berjast um stærstu titlana. Ég geri miklar kröfur og þannig hef ég alltaf litið á fótboltann og þá ábyrgð sem fylgir því að klæðast þessari treyju.“
„Þegar ég segi að ég vilji meira þá er ég að tala um þann metnað sem allir hjá félaginu verða að hafa. Við þurfum að halda áfram að bæta okkur, verða sterkari og sjá til þess að við höfum allt sem þarf til að berjast við þá bestu. Þetta eru kröfurnar sem við verðum að gera og þær byrja hjá mér sjálfum.“
„Ég veit að það eru fyrst og fremst við leikmennirnir sem verðum að standa okkur og ég tek fulla ábyrgð á mínum þætti. Við verðum að gera meiri kröfur til okkar sjálfra og vinna saman að því að koma United aftur á toppinn.“
„Ég hef fulla trú á liðsfélögum mínum, þjálfaranum og öllum þeim sem leggja hart að sér fyrir félagið. Ég er sannfærður um að eina leiðin áfram sé að standa saman, halda metnaðinum á lofti og leggja allt í sölurnar.“
„Markmið mitt hefur ekkert breyst frá fyrsta degi. Ég vil vinna, keppa á hæsta stigi og gefa allt sem ég á fyrir þetta merki,“ skrifaði Martínez í sögu sinni á Instagram.

Breaking: Lisandro Martinez on Instagram: https://t.co/AekB687KMS
— utdreport (@utdreport) October 14, 2026

Mynd: EPA

Mynd: EPA