09.10.20 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Gummi Tóta lagði upp mark í öruggum sigri

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Guðmundur Þórarinsson lagði upp fjórða mark New York City í 4-1 sigri á DC United í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í nótt.
Guðmundur átti þá fyrirgjöf á Keaton Parks sem skoraði á 88. mínútu.
Hinn 28 ára gamli Guðmundur byrjaði á bekknum hjá New York City í nótt en hann kom inn á fyrir Gary Mackay-Steven á 73. mínútu.
Gummi hefur spilað tólf leiki í MLS-deildinni á þessu tímabili en hann hefur fjórum sinnum verið í byrjunarliðinu.