Fotbolti.net
09.10.26 - 16:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

ÍBV óvænt talið líklegra til sigurs í botnslagnum

ÍBV vann sannfærandi 1-4 sigur gegn Þór í júní.

ÍBV vann sannfærandi 1-4 sigur gegn Þór í júní.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Á morgun fara fram tveir gríðarlega mikilvægir leikir í fallbaráttunni. Á VÍS vellinum á Akureyri tekur Þór á móti ÍBV í uppgjöri tveggja neðstu liðanna og á Samsungvellinum í Garðabæ tekur Stjarnan á móti þriðja neðsta liðinu, KA.

Stjarnan getur ekki fallið, liðið situr í 8. sæti með jafnmörg stig og Valur í 7. sætinu.
Arnar Grétars fer yfir Bestu deildina - „KA er með alltof gott lið til að fara niður“
TENGT EFNI

Arnar Grétars fer yfir Bestu deildina - „KA er með alltof gott lið til að fara niður“

ÍBV er hjá veðbankanum Epicbet talið líklegra liðið á Akureyri sem er nokkuð óvænt. Þór er með tveimur stigum meira og hefur unnið þrjá af síðustu fjórum heimaleikjum sínum. ÍBV er án sigurs síðan í byrjun júlí en í júní vann liðið afskaplega sannfærandi 1-4 útisigur gegn Þór sem er síðasti útisigur liðsins í deildinni.

Stuðullinn á sigri ÍBV er 2,44, stuðullinn á Þórssigri er 2,75 og jafnteflið er á stuðlinum 3,75.

Stjarnan er talið líklegra liðið í Garðabænum, stuðullinn á heimasigri er 1,93 og stuðullinn er 3,24 á útisigri.

Valur er talið líklegra liðið gegn FH, stuðullinn á því er 2,26 og Fram er talið líklegra til sigurs gegn KR. Þar er stuðullinn 2,33 á sigri Fram, 4,66 á jafntefli og 2,52 á útisigri KR.

25. umferðin í Bestu
laugardagur 10. október
19:15 Fram-KR (Lambhagavöllurinn)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-KA (Samsungvöllurinn)
14:00 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
14:00 Þór-ÍBV (VÍS völlurinn)

sunnudagur 11. október
19:15 Víkingur R.-ÍA (Víkingsvöllur)
19:15 Breiðablik-Keflavík (Eikarvöllurinn)
Fram talið líklegra liðið gegn KR.

Fram talið líklegra liðið gegn KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan tekur á móti KA.

Stjarnan tekur á móti KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.