Fotbolti.net
09.10.26 - 18:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rui Pinto fær vitnavernd eftir allt

Rui Pinto fær vitnavernd eftir allt
Canon

Mynd: Spiegel

Portúgalski uppljóstrarinn Rui Pinto verður áfram undir vitnavernd í bili eftir að portúgalsk yfirvöld frestuðu ákvörðuninni um að fella hana úr gildi.
Óttast um öryggi sitt vegna Man City málsins
TENGT EFNI

Óttast um öryggi sitt vegna Man City málsins

Sérstök öryggisáætlunarnefnd viðurkenndi að honum hefði átt að vera gefinn kostur á að leggja fram mál sitt áður en ákvörðunin var tekin. Hann fær nú tækifæri til að áfrýja afturköllun vitnaverndar sinnar og búist er við að nefndin endurskoði málið.

Hann hrundi af stað lekanum sem varð til þess að Manchester City var rannsakað vegna fjárhagsbrota. Hann hefur í kjölfarið fengið fjölmargar alvarlegar hótanir.

Hann hefur 10 virka daga til að fara yfir skjölin sem liggja að baki ákvörðuninni og bregðast við rökstuðningi og niðurstöðum hennar. Hugsanlegt var að Pinto missi vernd sína og því hóf hann fjáröflunarátak til að tryggja fjárhagslega framtíð sína. Hann hefur lýst yfir ótta um öryggi sitt eftir að hafa fengið trúverðugar líflátshótanir og orðið fyrir árás í Lissabon í apríl síðastliðnum.
Rui Pinto fær vitnavernd eftir allt
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.