08.10.26 - 22:21
Brynjar Ingi Erluson
Máttu ekki spyrja Haaland út í úrskurðinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester City bannaði skandinavíska miðlinum Viaplay að spyrja framherjann Erling Braut Haaland út í niðurstöðuna í máli félagsins vegna brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Viaplay, sem er með sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni, tók viðtal við Haaland fyrir stórleik Man City og Liverpool um helgina.
Samkvæmt VG bannaði City miðlinum að spyrja hann út í niðurstöðuna í máli félagsins, sem var fundið sekt um brot á fjárhagsreglum deildarinnar.
„Við vildum auðvitað spyrja Haaland nánar út í dóminn gegn Manchester City og létum bæði félagið og ensku úrvalsdeildina vita, en deildin sér um að skipuleggja viðtöl við leikmenn og þjálfara.“
„Hvorki City né önnur félög í úrvalsdeildinni hafa þó leyft okkur að spyrja út í dóminn fyrir þessa umferð,“ sagði Kristian Oma hjá Viaplay.
Reidar Sollie, stjórnarmaður í norska blaðamannafélaginu, hefur miklar áhyggjur af þessari þróun. Hann sagðist varla hafa getað annað en hlegið þegar hann sá City birta eigið viðtal við Haaland fyrir leikinn gegn Liverpool.
„Þetta verður sífellt algengara. Svona viðtöl eru hálfgert grín. Fyrirsögnin vekur áhuga manns og maður sér að þetta er viðtal við Haaland, en eftir fjórar línur er ljóst að það er búið að sníða þetta til.“
„Það er bara spjallað á léttu nótunum en ekkert rætt um vandamálin sem fólk hefur raunverulega áhyggjur af. Við blaðamenn glímum við gríðarlegar áskoranir við að fá staðreyndirnar fram og ná almennilegum viðtölum við fólkið sem við viljum ræða við.“
„Okkar afstaða er sú að blaðamenn verði að fá að spyrja þeirra spurninga sem þeir vilja og viðmælendur að svara eins og þeir vilja,“ sagði Sollie.