08.10.26 - 15:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Glódís: Hefur setið svolítið lengi í mér
Skrifar frá Rovinj í Króatíu
Auglýsing

Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.

Mynd: KSÍ

Glódís eftir leikinn fyrir fjórum árum.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

„Ég er ótrúlega spennt að við séum loksins komin í þetta verkefni, að ná í þennan HM draum sem við höfum talað um," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Framundan hjá íslenska kvennalandsliðinu eru tveir leikir gegn Króatíu í umspilinu fyrir HM. Fyrri leikurinn fer fram í Pula í Króatíu á morgun.

Ísland hefur farið fimm sinnum á Evrópumótið en aldrei komist á HM. Núna er kominn tími á að breyta því.
„Hann hefur setið svolítið lengi í manni þessi leikur á móti Portúgal þegar við vorum seinast í gríðarlega góðum séns. Það er rosalega gott að vera komin aftur í umspil um að komast á HM og eiga séns aftur. Ég er gríðarlega spennt að taka þátt í þessu verkefni og fyrsta skrefið er hér í Króatíu," segir Glódís.
Ísland fór í umspil um að komast á HM fyrir fjórum árum þegar liðið tapaði í hreinum úrslitaleik gegn Portúgal. Núna er búið að breyta fyrirkomulaginu á umspilinu og Ísland fer núna í tveggja leikja einvígi við Króatíu og ef við vinnum er það annað tveggja leikja einvígið við þá Norður-Írland eða Portúgal.
„Þetta var ekki eins sanngjarnt og maður hefði viljað hafa það, að fá einn leik og dregið hvar hann var spilaður. Auðvitað er það stundum þannig og við vorum ekki nógu góðar í þeim leik. Það er bara eins og það er. Núna eru fjögur ár síðan. Þetta er tiltölulega nýr hópur á mjög margan hátt og þetta er gríðarlega spennandi. Við ætlum að taka þetta fyrsta skref."
„Auðvitað eru þetta leikir sem við eigum að vinna, við ætlum ekkert að fara í felur með það. Eins og ég segi, þá er þetta fyrsta skrefið í þessum draum hjá okkur," sagði Glódís.
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.