08.10.26 - 22:45
Brynjar Ingi Erluson
Segir UEFA hafa slátrað sér - „Þegar ég kom aftur var ég þegar dauður“

Mynd: EPA

Anthony Taylor og Jose Mourinho í umræddum leik

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgalski þjálfarinn Jose Mourinho segir UEFA hafa látið hann bera ábyrgð á áreitinu sem dómarinn Anthony Taylor varð fyrir eftir úrslitaleik Roma og Sevilla í Evrópudeildinni fyrir þremur árum.
Mourinho vann Sambandsdeildina með Roma árið 2022, á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu, og kom liðinu í úrslit Evrópudeildarinnar árið eftir.
Hann var afar ósáttur við dómgæslu Taylor í úrslitaleiknum og missti stjórn á skapi sínu eftir leik. Roma vildi meðal annars fá vítaspyrnu er leikmaður Sevilla handlék boltann en Taylor dæmdi ekkert. Dómarinn varð síðan fyrir áreiti á flugvellinum í Búdapest.
„Ég ber aðeins ábyrgð á því sem gerðist milli mín og dómarans í göngunum, ekki því sem gerðist á flugvellinum.“
„Þetta eyðilagði samband mitt við eigendurna. Þeir voru á annarri skoðun en ég og vildu nálgast þennan úrslitaleik með öðrum hætti.“
„Eftir úrslitaleikinn fór ég í frí og þegar ég kom aftur var ég þegar dauður. UEFA slátraði mér og lét mig bera ábyrgð á einhverju sem ég bar enga ábyrgð á,“ sagði Mourinho.
Hann var einnig spurður út í endurkomuna til Real Madrid og Negreira-málið svokallaða. Á árunum 2001 til 2018 greiddi Barcelona 7,3–8,4 milljónir evra til fyrirtækja tengdra Enrique Negreira, þáverandi varaformanni spænsku dómaranefndarinnar.
Real Madrid hefur lagt fram 50 þúsund blaðsíðna skýrslu til UEFA og krafist þess að Barcelona verði svipt níu deildartitlum sem félagið vann á þessu tímabili.
„Ég kom til Real Madrid og var þar á mikilvægum árum í Negreira-málinu. Enginn vissi af þessu en við upplifðum það samt. Ég fór og nú vita allir af þessu.“
„Í Tyrklandi var líka þessi stóri dómaraskandall. Þetta virðist gerast æ oftar,“ sagði Mourinho.