Fotbolti.net
08.10.26 - 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Minnir mig á Ollu Siggu, vinkonu mína"

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Katla og Íris.

Katla og Íris.

Canon

Mynd: Instargam

Eimskip
Landsliðskonan Katla Tryggvadóttir spilar með Fiorentina á Ítalíu. Þar er hin hálfíslenska Íris Ómarsdóttir liðsfélagi hennar.

Pabbi Írisar er íslenskur en hún er uppalin í Noregi. Það er útlit fyrir að hún muni spila fyrir Noreg frekar en Ísland þar sem hún hefur verið viðloðandi norska landsliðið að undanförnu.
„Borgin er geggjuð og ég er í geggjuðu liði“
TENGT EFNI

„Borgin er geggjuð og ég er í geggjuðu liði“

Katla var spurð út í Írisi í viðtali við Fótbolta.net í gær.

„Hún er ógeðslega góð. Maður heldur enn í vonina. Nei, ég held að hún sé búin að ákveða sig, því miður," sagði Katla.

„Hún talar enga íslensku, þannig að ég þarf að tala við hana á sænsku og hún á norsku."

Katla segir að Íris sé skemmtilegur karakter.

„Hún er frábær karakter og minnir mig á Ollu Siggu vinkonu mína. Hún er geggjuð," sagði Katla en hún og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, betur þekkt sem Olla Sigga, spiluðu saman í Þrótti á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.