Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 09. nóvember 2019 18:15
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Marco Silva: Stigin þrjú eru fyrir Andre Gomes
Marco Silva.
Marco Silva.
Mynd: Getty Images
Everton vann góðan 1-2 útisigur á Southampton fyrr í dag, Davies og Richarlison skoruðu mörk Everton í leiknum.

Pressan á Marco Silva minnkar væntanlega aðeins eftir þennan sigur.

„Þessi sigur er mjög mikilvægur fyrir okkur. Við áttum skilið að fá stigin þrjú, við vorum betra liðið á vellinum. Fyrri hálfleikurinn var mjög góður og við hefðum átt að gera út um leikinn þá en það gerðum við ekki. Southampton skoraði en við sýndum karakter með því að ná í sigurinn eftir að þeir jöfnuðu."

Silva tileinkaði tveimur leikmönnum Everton sigurinn, þeim Jean-Philippe Gbamin og Andre Gomes sem báðir eru frá vegna alvarlegra meiðsla.

„Stigin þrjú eru ekki bara fyrir Andre Gomes, þau eru einnig fyrir Jean-Philippe Gbamin. Þessir tveir leikmenn hafa báðir þurft að fara í aðgerðir vegna meiðsla sinna. Andre er heima hjá sér og er alveg örugglega mjög ánægður með sigurinn. Hann sendi mér skilaboð fyrir leikinn til að styðja liðið, hann mun alltaf vera með okkur í huganum og við munum einnig styðja hann eins og við getum," sagði Marco Silva.

Athugasemdir
banner
banner
banner