Fotbolti.net
10.01.22 - 14:12
Elvar Geir Magnússon

Zouma snýr aftur á undan áætlun

Kurt Zouma.

Kurt Zouma.

Canon

Mynd: EPA

Bataferli Kurt Zouma, varnarmanns West Ham, hefur gengið vel og stefnir í að hann muni snúa til baka á undan áætlun. Zouma meiddist aftan í læri í byrjun desember.

Báðir byrjunarliðsmiðverðir West Ham meiddust fyrir áramót en Angelo Ogbonna þurfti að fara í aðgerð og spilar ekki meira á tímabilinu. David Moyes, stjóri West Ham, hefur verið að skoða kosti í janúarglugganum,
En Frakkinn Zouma, sem hafði spilað frábærlega á tímbilinu eftir að hafa komið frá West Ham, ætti að geta snúið til æfinga bráðlega. Í fyrstu var talið að hann yrði frá í um þrjá mánuði.

Mögulegt er að Zouma gæti náð heimsókn West Ham til Manchester United þann 22. janúar.

West Ham er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið fær Norwich í heimsókn á miðvikudag. Moyes gæti reynt að styrkja liðið nú í janúar þar sem það er í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar auk þess að vera að berjast um fjórða sæti úrvalsdeildarinnar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.