þri 10. janúar 2023 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola um Bale: Núna verður hann stórkostlegur golfari
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, var léttur á fréttamannafundi er hann var spurður út í Gareth Bale.

Guardiola hefur aldrei þjálfað Bale en hann hefur oft og mörgum sinnum mætt honum.

Hinn 33 ára gamli Bale lagði skóna á hilluna í gær eftir mjög svo farsælan fótboltaferil. Bale gekk til liðs við Real Madrid frá Tottenham árið 2013 og vann spænsku deildina þrisvar og Meistaradeildina fimm sinnum.

Á síðustu árum hefur fótboltaáhuginn minnkað hjá Bale og hann hefur spilað aðra íþrótt jafnvel enn meira. Hann er nefnilega mikill golfari, elskar þá íþrótt.

„Þvílíkur leikmaður. Stórkostlegur ferill og hann vann marga titla. Hann spilaði meira en 100 landsleiki. Núna verður hann stórkostlegur golfari."
Athugasemdir
banner