mið 10. febrúar 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland með Englandi og Ítalíu í riðli í undankeppni eEuro 2021
Mynd: Getty Images
Ísland er í riðli H í undankeppni eEuro - undankeppni EM - 2021 í tölvuleiknum PES, en þetta er í annað skiptið sem Ísland tekur þátt í keppninni.

Í undankeppninni mætir Ísland Ítalíu, Englandi, Portúgal, Moldóvu og Norður Írlandi. Þess má geta að Ítalir eru ríkjandi Evrópumeistarar í PES, en þeir unnu Serbíu í úrslitaleiknum fyrir ári síðan.

Upplýsingar um leikdaga koma á næstu dögum og verða þeir auglýstir hér á vef KSÍ þegar þar að kemur.

Íslenska landsliðið í e-fótbolta spilaði sex leiki í síðustu undankeppni og tapaði fimm þeirra. Leikurinn sem tapaðist ekki endaði með jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner