Jói Kalli: Enginn leikur í þessu umspili auðveldur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Flott frammistaða í heildina, þetta var alveg erfiður leikur, KA mennirnir eru bara flottir," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH eftir 3-0 sigur gegn KA í dag.
„Þeir spila á móti Blikunum og núna á móti okkur með fimm manna vörn, og eru ansi þéttir og geta verið erfiðir að eiga við. Þeir eru líka bara ansi góðir fram á við þannig að við vissum að þetta yrði erfitt. En bara á heildina varnarleikurinn, vinnusemin og orkan í mönnum, samstaðan að klára þennan leik 3-0, halda hreinu, frábært. Þannig bara virkilega vel gert hjá öllum," sagði Jóhannes.
KA byrjaði seinni hálfleikinn mjög vel og fengu tvö góð færi. Það var því mjög tímabært þegar FH skorar sitt annað mark fljótlega eftir það.
„Í raun og veru eru færin sem KA fær snemma í fyrri hálfleiknum var af því að pressan hjá okkur var ekki nógu rétt framkvæmd, við opnum okkur svolítið þannig. Við færum ekki oftustu línuna nógu vel yfir, en við ætuðum ekkert að hætta því, höldum áfram pressunni og færa vörnina, færa liðið og gera það erfitt fyrir KA liðið að komast upp völlinn. Á móti vindunum líka, við náum ágætis spili í gang og vorum ekki alveg að gera hlutina rétt. Svo bara eftir það tökum við öll völd á vellinum fannst mér, og vorum hættulegir fram á við. Svo lokum við leiknum ansi fagmannlega," sagði Jóhannes.
Erlingur Agnarsson þurfti að fara snemma meiddur af velli en fyrir utan það er staðan á hópnum góð fyrir síðustu fjóra leikina.
„Við erum bara í fínu standi, auðvitað kemur náttúrulega landsleikjahlé inn í þetta en það er annar leikur fram að því. Við þurfum að halda áfram að æfa vel og klára þetta tímabil af krafti. Það er nokkuð ljóst því það verður enginn leikur í þessu umspili auðveldur sem er framundan. Það er Stjarnan hjá okkur næst, og við þurfum að gjöra svo vel að vera klárir í það, sem að við verðum. Leiðinlegt að missa Erling meiddan útaf snemma í leiknum, ég veit ekki alveg hver staðan er á honum, en flest allir bara í fínum málum," sagði Jóhannes.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
