Fotbolti.net
13.09.26 - 17:04
Brynjar Ingi Erluson

Endurkomusigur hjá Arnóri - Daníel Tristan einn af bestu mönnum Malmö

Daníel Tristan átti góðan leik með Malmö

Daníel Tristan átti góðan leik með Malmö

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan Guðjohnsen átti góðan leik í liði Malmö sem vann Örgryte 4-1 í sænsku úrvalsdeildinni.
Framherjinn var í byrjunarliðinu og er hægt og rólega að vinna sig aftur inn í liðið.

Daníel var mjög ógnandi fram á við og þó hann hafi ekki skorað var hann gríðarlega mikilvægur í sóknarleik Malmö.

Hann skapaði færi fyrir liðsfélaga sína, átti mörg góð hlaup og kom mikið við sögu í þriðja marki liðsins.

Flottur leikur hjá Daníel en Malmö er í 5. sæti með 33 stig.

Arnór Sigurðsson, fyrrum liðsfélagi Daníels hjá Malmö, byrjaði á meðan hjá Kalamata sem vann 3-1 endurkomusigur á Volos í grísku úrvalsdeildinni.

Þetta var fyrsti sigur nýliðanna í deildinni en liðið er nú með fjögur stig.

Viðar Ari Jónsson byrjaði hjá HamKam sem tapaði 5-1 fyrir Molde á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni. HamKam er í 10. sæti með 23 stig.

Ólafur Guðmundsson var í liði Álasunds sem tapaði 2-1 fyrir KFUM Oslo. Álasund er á botninum með 18 stig.

Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Brann sem tapaði 2-0 fyrir Start. Eggert Aron Guðmundsson, Kjartan Már Kjartansson og Sævar Atli Magnússon voru ekki í leikmannahópi Brann sem er í 7. sæti með 26 stig.

Breki Baxter byrjaði hjá Egersund sem gerði 1-1 jafntefli við Kongsvinger í norsku B-deildinni. Hinrik Harðarson kom inn af bekknum þegar stundarfjórðungur var eftir. Egersund er í 8. sæti með 29 stig.

Atli Barkarson var þá í liði Sogndal sem gerði 1-1 jafntefli við Strömmen. Sogndal er í 13. sæti með 23 stig.
Arnór Sigurðsson og félagar í Kalamata unnu fyrsta leik sinn í grísku deildinni

Arnór Sigurðsson og félagar í Kalamata unnu fyrsta leik sinn í grísku deildinni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.