Óskar Hrafn: Við erum búnir að sakna Arnars mikið

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Bara mjög öflug frammistaða,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 5-1 sigur gegn ÍA á Meistaravöllum í dag.
„Svöruðum vel þessum leik á síðasta sunnudag upp á Skaga. Sýnir kannski að þetta eru tvær ólíkar íþróttir að spila á náttúrulegu grasi á Íslandi og gervigrasi en bara feikilega öflug frammistaða og mjög sáttur,“ hélt hann áfram.
Það hefur mikið verið talað um muninn á KR liðinu á náttúrulegu grasi og gervigrasi í sumar. Kristallaðist þessi munur spilamennsku liðsins eftir undirlagi í þessum tveimur leikjum gegn ÍA?
„Ef við horfum á þessa þrjá leiki sem við höfum spilað á grasi í sumar, þá höfum við alls ekki verið jafn góðir, við vorum fínir á móti FH í Kaplakrika. Þetta hefur verið öðruvísi bragur á okkur á grasi og gervigrasi og við höfum ekki náð taktinum á grasinu og alls ekki náð í nægilega mörg stig þannig að það er eitthvað sem við verðum að skoða hjá okkur sjálfum. Það er og verður, það munu alltaf vera leikir á grasi og við höfum enga afsökun fyrir því að standa okkur ekki og ná ekki í stig þar.“
Arnar Freyr kemur í markið í dag hjá KR og það var á köflum hálfótrúlegt að fylgjast með KR í sínu spili út frá markinu þar sem Arnar spilar sem eins konar hægri bakvörður. Halldór Snær hefur verið í marki KR í sumar vegna meiðsla Arnars en það er ljóst að innkoma Arnars hefur mikil áhrif á liðið. Aðspurður hvað Arnar gefur liðinu aukalega í uppspili og leikstílnum sem KR vill spila segir hann:
„Hann gefur okkur svo margt. Dóri hefur verið flottur í erfiðu hlutverki en ég held að það hafi allir séð í þessum leik hvað við erum búnir að sakna Arnars mikið. Bæði sem persóna inn á vellinum, hann er stór persónuleiki og gefur liðinu mikið öryggi. Hann er auðvitað mjög hugaður og er einhvern veginn ekki að ofhugsa hlutina, algjörlega óttalaus og svo er hann bara mjög fínn á bolta. Það er auðvitað það að markmaðurinn okkar geti komið með boltann og borið hann inn á vallarhelming andstæðinganna, auðvitað gefur það þér ákveðna vídd og setur andstæðingana í ákveðið vesen sem að þeir þurfa að leysa. Svo er hann bara flottur á milli stanganna, fyrir mér maður leiksins í dag.“
Viðtalið við Óskar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
