England: Haaland skoraði tvennu þegar Man City komst á toppinn

Haaland.

Mynd: EPA


Mynd: Getty Images

Haaland.

Mynd: EPA
Manchester City 2 - 0 Everton
1-0 Erling Haland ('71 )
2-0 Erling Haland ('85 )
Englandsmeistararnir í Manchester City tóku á móti Everton í hádegisleiknum í dag en heimamenn voru í stökustu vandræðum með að brjóta upp vörn gestanna.
Staðan var markalaus í hálfleik en Everton varðist mjög djúpt á vellinum og gaf engin færi á sér. Þegar fyrri hálfleiknum lauk átti Man City ekki eina einustu tilraun á mark Everton.
Sama var upp á teningnum í framan af síðari hálfleik en fyrsta tilraun City á markið kom á 71. mínútunni og þá fór boltinn í netið. Það var Erling Haaland sem skoraði það með hægri fótar skoti eftir klafs í teignum. Mögulega átti Jordan Pickford að gera betur í marki Everton.
City náði að tvöfalda forystuna fimm mínútum fyrir leikslok en þá var Haaland aftur á ferðinni. Hann skoraði eftir góða skyndisókn þar sem Kevin De Bruyne, sem kom inn á sem varamaður, átti stoðsendinguna á Haaland.
Góður sigur hjá Man City staðreynd og er liðið nú á toppnum með einu stigi meira heldur en Liverpool þegar 23 umferðir eru búnar. Everton er í átjánda sætinu.


Mynd: Getty Images
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | +10 | 27 |
| 2 | Brighton | 10 | +19 | 22 |
| 3 | Man City | 10 | +8 | 21 |
| 4 | Liverpool | 10 | +4 | 18 |
| 5 | Chelsea | 10 | +3 | 16 |
| 6 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 7 | Bournemouth | 10 | +2 | 15 |
| 8 | Aston Villa | 10 | -1 | 15 |
| 9 | Brentford | 10 | +5 | 14 |
| 10 | Leeds | 10 | +2 | 14 |
| 11 | Tottenham | 10 | -1 | 12 |
| 12 | Newcastle | 10 | -3 | 12 |
| 13 | Hull City | 10 | 0 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 10 | -5 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | -2 | 10 |
| 16 | Nott. Forest | 10 | -4 | 9 |
| 17 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 18 | Sunderland | 10 | -9 | 8 |
| 19 | Man Utd | 10 | -7 | 7 |
| 20 | Crystal Palace | 10 | -14 | 7 |
