Chelsea má ekki ræða við varnarmennina Cesar Azpilicueta, Andreas Christensen og Antonio Rudiger um nýja samninga eftir að eigandi félagsins, Roman Abramovich, var settur á sérstakan refsilista breskra stjórnvalda.
Mark Ogden íþróttafréttamaður ESPN segir að reglurnar sem hafi verið settar snerti alla fleti félagsins á einhvern hátt.
Mark Ogden íþróttafréttamaður ESPN segir að reglurnar sem hafi verið settar snerti alla fleti félagsins á einhvern hátt.
„Þetta hefur marglaga áhrif og mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir félagið. Þetta er sannkölluð risafrétt," segir Ogden.
„Félaginu er bannað að gera nýja samninga svo það getur ekki rætt við Antonio Rudiger, sem er einn besti leikmaður liðsins, um nýjan samning. Það er nokkuð víst að hann muni fara á frjálsri sölu þegar samningur hans rennur út í sumar."
Rudiger er feikilega öflugur varnarmaður og er á óskalista margra félaga.
„Þetta eru fordæmalausar aðstæður og er skelfilegt fyrir Chelsea. Félagið er eitt það stærsta í heimi og Abramovich hefur breytt því úr metnaðarfullu félagi til Evrópumeistara og ríkjandi heimsmeistara."
„Sama hvað gerist upp úr þessu þá verður þetta ekki það Chelsea sem við höfum þekkt. Abramovich hefur lánað félaginu um 90 milljónir punda á ári. Það gerir það enginn lengur," segir Ogden.
Sjá einnig:
„Gætum þess að Chelsea og þjóðaríþróttin hljóti ekki óþarfa skaða"
Telur að sala á félaginu verði leyfð
Abramovich má ekki selja Chelsea en samkvæmt heimildum BBC eru stjórnvöld opin fyrir því að gefa leyfi á að félagið verði selt með þeim skilyrðum að ágóðinn renni ekki í hans vasa. Ríkisstjórnin telur að félaginu sé hugsanlega best borgið ef það verður selt.
Stórir styrktaraðilar hjá Chelsea eru að skoða sín mál. Ian Herbert, blaðamaður Daily Mail, telur líklegt að sala á félaginu verði leyfð.
„Þrátt fyrir að Chelsea geti ekki hagnast sem stendur þá er félagið með sjónvarpspeninga og er enn í nokkrum keppnum. Mín fyrstu viðbrögð við þessum fréttum er að líklegt sé að gefið verði leyfi á sölu," segir Herbert.
Ýmsum spurningum enn ósvarað
Ársmiðahafar Chelsea mega mæta á leiki en félagið má ekki selja fleiri miða.
„Varðandi miðana, hvað ef félagið kemst í undanúrslit FA-bikarsins? Verða þá 50 þúsund auð sæti þar sem stuðningsmenn Chelsea hefðu átt að vera? Það er fjöldi ósvaraðra spurningar. Enska úrvalsdeildin er enn að melta þessar fréttir," segir Ogden.
„Í augum margra í heiminum er Chelsea félag London. Þetta gæti orðið mikið högg fyrir ensku úrvalsdeildina. Enginn okkar veit smáatriðin nákvæmlega og við sjáum bara toppinn á ísjakanum. Þetta er risastór og vondur dagur fyrir Chelsea."
Faisal Islam, fjármálasérfræðingur BBC, segir: „Félagið hefur notið mikillar velgengni en ég held að grimmur sannleikurinn sé sá að velgengnin muni ekki halda áfram."
Athugasemdir




